Dagrenning - 01.04.1946, Page 20

Dagrenning - 01.04.1946, Page 20
Þá er þarna ennfremur sagt, að þeirn hafi verið fenginn bústaður í Hala, sem þá ætti að vera borg eða hérað í Medíu. Við það nafn er eftirfarandi athugasemd í biblíu- þýðingu hins stórlærða brezka Biblíufræð- ings Ferrar Fentons: „Khalakh er hérað það, sem nú er nefnt Aserbeisjan í Persíu og er merking- in í orðinu „land eldanna“. Um þetta hérað rennur enn í dag á, sem Gosan nefnist, og fellur hún út í Kaspíahafið norð-vcstanvert á svæði því, sem nú til- lieyrir Rússurn og telst til borgarinnar Baku.“ Urn það verður því tæpast lengur deilt, að hinar tíu ættkvíslir ísraels, er Assyríukon- ungur herleiddi þaðan, hafa verið fluttar alla leið austur að Kaspíahafi og fengið þar til ábúðar hrjóstrugt og erfitt fjallaland. Menn verða nú að gera sér þess glögga grein, að með þessari herleiðingu ísraels- manna norður og austur undir Kasípahaf hvarf Ísraelsríki hið forna að fullu og öllu úr sögunni og hefur aldrei við sögu komið síðan undir því nafni og svo gjörsamlega týnd hefur þessi forna menningarþjóð verið, að hcnnar er síðan varla getið í sagnritum. Sá stórkostlegi og ófyrirgefanlegi misskiln- ingur hefur aftur á móti komizt inn í sögu- kennslu síðari tíma, og er það mestmegnis sök kaþólsku kirkjunnar, að Gyðingar séu öll hin forna ísraelsþjóð. En það er auðvitað alveg rangt og þarf ekki annað en lesa heim- fararsögu Gyðinganna í Esra- og Nehemia- bók til þess að ganga úr skugga um, að það voru aldrei aðrar ættkvíslir en Júdaættkvísl og Benjamínsættkvísl, ásamt nokkru af Levítum — Levísættkvísl —, sem heirn kom aftur úr herleiðingunni til Babylonar, þ. e. fólkið úr Júdaríki. — Gyðingar eru aðeins ein af 12 ættkvíslum ísraels, og sú ættkvísl- in, sem aldrei hefur týnzt að fullu. Jósefus sagnritari Gyðinga, sem skráði Gyðingasögu sína um yo e. Kr., tekur af öll tvímæli í þessu efni. Hann segir: „Það eru aðeins tvær ættkvíslir í Asíu og Evrópu undirgefnar Rómverjum, en hinar tíu ætt- kvíslirnar eru handan við Eírat og eru geysi- fjölmennar.“ Það er vitað að Gvðingar nú á dögum telja sig aðallega vera afkomendur Júda — enda kallaðir „Júðar“ á mörgum málum, — og aðeins óverulega blandaðir af öðrum ættkvíslum Israels, og þá helzt Benja- míns- og Levís-ættkvíslum. XI. T TÉR skal ekki lengur dvalið við Júda- A A ættkvíslina né sögu hennar, því að ætlunin var að reyna að fylgja, ef unnt væri, ferli hinna tíu ættkvíslanna, sem Assyríu- konungur flutti austur að Kaspíahafi á tíma- bilinu 726—675 f. Kr. En slóð þeirra hefur ekki reynst auðrakin, þar til nú á síðustu ára- tugum, að tekizt hefur að bregða ofurlítilli birtu á veg þeirra. Ein af mörgum apokryfiskum bókum Gyðinga lieitir Esdrasbók. Ekki er hún til á íslenzku og ég hef ekki séð hana nema á ensku. í 2. Esdrasbók, 13. kap. 40.—45. standa þessar merkilegu setningar: „Þetta eru hinar tíu ættkvíslir, sem herleiddar voru úr sínu eigin landi á dög- um Hósea konungs og Salmanasar As- syríukonungur flutti þá yfir vötnin og Jieir komu í annað land. En Jieir réðu það með sér, að þeir skvldu vfirgefa fjölda heiðingjanna og fara burt í fjar- lægt land, þar sem aldrei hefðu menn búið, svo að Jieir gætu haldið þar lög sín, sem Jieir höfðu aldrei haldið í þessu landi. Og þeir fóru út í Efrat, þar sem áin er mjó, og hinn Hæsti gerði krafta- verk fyrir þá og stöðvaði fljótið, unz þeir voru komnir yfir um. En í það land var langan veg að fara eða í hálft annað ár, 14 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.