Dagrenning - 01.04.1946, Síða 30

Dagrenning - 01.04.1946, Síða 30
þjóð, sem kallar sig Dani. Hún stofnsetur þar ríki og lýkur með því að leggja undir sig allt Jótland og alla Suður-Svíþjóð. Á Jót- landi bjuggu þá fyrir Jótar nyrst og Frísar sunnar og stöktu Danir hvorum tveggja að mestu í burt, er stundir liðu og fóru Jótar yfir til Bretlandseyja og Frísar til Hollands. Virðist svo sem Danir og Frísar liafi verið frændur og fylgzt eitthvað að á ferðurn sín- um. Við Dansigflóann er lón mikið, sem nefnist Frisahóp eða Frísa-lón, og vitað er með fullri vissu, að Frísar bjuggu á lands- svæði Jdví, sem var vestan og sunnan Jót- landsskaga og á eyjunum þar út af, sem enn í dag heita Frísaevjar. Af Frísum eru Hollendingar konmir og eru þeir því náfrændur Dana og annarra nor- rænna þ>jóða. Dans nafnið er enn í dag tengt við Dan- rnörku, og eru Danir sú þjóðin á Norður- löndurn, sem í árdaga okkar nýrri sögu ber höfuð og herðar yfir allar aðrar þjóðir á Norðurlöndum og Bretlandseyjum. Virðist mér margt benda til þess að Danir þeir, sem lögðu undir sig Jótland og eyjarnar í sund- inu milli Jótlands og Svíþjóðar, séu hin gamla Dans-ættkvísl, er áður hjó í Dacíu eða Daníu — suður við Dóná, enda fær Dan- mörk í fyrstu nákvæmlega sama nafnið meðal rómverskra þjóða, þegar hún kemur þar fyrst við sögur, og er kölluð Dacía. Geta menn sannfært sig um að þetta sé rétt með þ>ví að fletta upp í alfræðiorðabók Dana sjálfra, Salmonsens Lexikon, orðinu Dacía. Þessi skoðun styðst við umrnæli rnargra fornra sagnfræðinga, sem ekki verða rakin hér að neinu ráði að þessu sinni. Þó skal á J>að bent, að í hinu forna sagnriti „Vetus Chronicon IIolsatiæ“ (bls. 54) er beinlínis sagt að Danir þeir, sem byggðu Danmörku, hafi verið af Dans-ættkvísl ísraelsmanna. (A. Ruth.: Israel-Britain, bls. 41.) Verður þetta nú ekki lengra rakið að sinni, en hér skal á það rninnt, að í 49. kap. í 1. Mósebók, þar sem tilfærð eru blessunarorð Jakobs vfir hvern einn af sonum hans áður cn hann andast, segir svo um Dan: „Dan mun rétta hluta þjóðar sinnar sem hver öiin- ur ísraels ættkvísl. Verði Dan liöggormur á veginum og naðra í götunni." För Dans gegnurn Evrópu hefur alveg sérstaklega líkzt leið höggormsins, þar sem hann hefur farið í ótal krókum og hlykkjum yfir landið frá einu hafinu til annars, en þó jafnan skilið far eftir sig — þ. e. nafn ættföður síns á sundunr, ám, borgum og löndum. En Dans- ættkvíslin hefur og að öðru levti verið „högg- ormur á veginum". Hún hefur flutt orms- merkið — drekamerkið — til Evrópuþjóða, því að óhætt er að fullyrða, að þaðan er það komið fvrst og fremst, enda kemur það fyrst frarn hér á Norðurlöndum á víkinga- skipum þeim, senr Danir og Norðmenn nota á víkingaferðum sínum, og til Rómverja er það komið frá Dakíum — forfeðrum Dana — eins og áður er sagt. XVII. ÉR að frarnan hefur nú verið rakið nokkuð, hvernig þeir menn hugsa sér að verið hafi í aðaldráttum för ísraelsmanna frá heimkynnum þeirra í Egyptalandi og Pale- stínu og til landa þeirra í Evrópu, sem afkorn- endur ísraelsmanna nú byggja. Er þó samt sem áður ennþá eftir að finna hið beina sam- band, ef það er til, milli sjálfrar sögunnar um landvættirnar og þessa fólks. Verður nú hér að lokunr vikið að því atriði. Þegar Snorri Sturluson hefur skrásett sög- una um för hvalsins og móttöku landvætt- anna, bætir hann við: „Þá var Brodd-Helgi í Vopnafirði, Eyjólf- ur Valgerðarson í Eyjafirði, Þórður gellir í Breiðafirði og Þóroddur goði í Ölfusi." Nú mundi margur vafalaust freistast til að varpa frarn þessari spurningu: 24 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.