Dagrenning - 01.04.1946, Side 37

Dagrenning - 01.04.1946, Side 37
Droplaugarson — í hinum stórmerku grein- um sínum í tímaritinu Helgafelli: „Uppruni íslenzkrar skáldmenntar." Vil ég benda þeim, er þetta lesa, á að afla sér þeirra rit- gerða og lesa þær vandlega með sérstöku tilliti til þess máls, sem hér er flutt. Ég tel rétt að taka hér upp í heilu lagi þann kafla úr ritgerð Barða Guðmundsson- ar, sem sérstaklega fjallar um „orms“-nöfnin og uppruna þeirra. Þar segir svo: „Nú mun reynast hægara um vik að ræða urn ætterni fjórða Austurlandsskáldsins, Gríms Droplaugarsonar. Ætt hans er í Land- námabók talin frá Þóri þiðranda, sem lík- lega hefur heimkynni átt í Veradal í Þrænda- lögum. Þaðan eiga þeir synir hans, Ketill þrymur og Gaut-Atli, að hafa komið til ís- lands. Þeir námu Lagarfljótsstrandir, og var Grímur þriðji maður í beinum karllegg frá Katli þrym. Ketill þrymur á tvo alnafna í fornum sögum. Var annar þeirra Ketill þryrnur í Njarðvík, sonarsonur hans. Um hinn er getið í þættinum: „Hversu Noregur byggðist", og á sá Ketill þrymur að hafa búið í Þrurnu á Ögðum endur fyrir löngu, því að hann er talinn fjórði rnaður frá Aust- un'egskonunginum Nór, sem á að hafa lagt Noreg undir sig. í sömu andrá, sem Ketils þessa þryms er getið í ættartölunni frá Nór konungi, er og nefndur Végarður „faðir Veðrorms föður Vémundar gamla“. Nöfn þessi beina huganum þegar að landnámsfrá- sögninni um Ketil þrym, afa Gríms Drop- laugarsonar. Þar segir: „Ketill fór utan og var með Véþormi, syni Vémundar hins gamla“. í Droplaugarsona sögu er nánar frá utanlandsförinni skýrt og Véþormur nefnd- ur þar Veðormur. í þessum ritum mæta okkur aftur sörnu nöfnin: Ketill þrymur, Veðrormur og Vémundur gamli. Þau eru allt of fágæt til þess að um tilviljun geti verið að ræða. Hvergi er getið frændsemi milli vinanna Veðorms Vénmndarsonar og Kctils þryrns landnámsmanns, en það má auðsætt vera, að einhverju sinni hafa ættir þeirra verið raktar upp til frændanna Ketils þryms í Þrunm og Vémundar garnla Veðr- ormssonar. Samhljóðan nafnanna í ættar- tölunni frá Nór og frásögnunum af Katli þiy'm sýnir, að þessu hefur verið þannig varið. í þættinum „Hversu Noregur byggðist" er aðeins ein ættkvísl rakin frá Nór konungi niður til landnámsmanna. Það er til bræðr- anna á Akranesi, Bersasona. Lýkur henni með Tungu-Oddi, dóttursyni Þormóðs. Þessi undantekning er kynleg, en það' er nú svo, að Reykhyltingar 13. aldar fóru með goðorð Tungu-Odds, bjuggu í heimahögum hans og voru frá honum komnir. Ættir annarra land- námsmanna frá Nór lætur þáttarskrifarinn sér nægja að rekja niður til Ketils þryms í Þmnm, Vénmndar gamla, Ketils raums og Hjörleifs konungs hins kvensama. í land- námabók er Geirmundur heljarskinn talinn þriðji maður í karllegg frá Hjörleifi, en Ingi- mundur gamli annar frá Katli raum. Má nú segja, að margt sé líkt með skyldum. Ættir þeirra landnámsmanna, sem taldar hafa ver ið frá Nór konungi, bera á sér óvenju skýr einkenni austrænna menningarhátta. Hérna höfurn við þá fimm ættbálka, sem allir eiga að vera af sömu austnorrænu rót- inni runnin. Menn nmnu yppta öxlum yfir þeirri sagnfræði að tala um austnorræna rót í sambandi við hinn ósannsögulega Nór kon- ung. En látum okkur sjá. Frá 9. og 10. öld eru kunn nokkur mannanöfn, sem enda á „ommr“. Þau eru að því er E. H. Lind telur í nafnabók sinni þessi: Hallormur, Ketil- ormur, Ráðormur, Veðrornmr og Þórormur. Það er fróðlegt að athuga, hvar þau koma fyrir. Hallormur heitir tengdasonur Ingi- mundar garnla og býr í Vatnsdal. Við Atla- vík, heimkynni Graut-Atla, bróður Ketils DAGRENNING 27

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.