Dagrenning - 01.04.1946, Qupperneq 48
„sönnu kirkju",sem„nafn sitt á skráðáhimn-
um“. Stundum kernur það fyrir, að sama dag-
setningin er mörkuð bæði í kalksteininn og
granítið í pýramidanum. Þá táknar það, að
sú dagsetning hefur þýðingu bæði fyrir hið
„jarðneska" og hið „himneska", ef svo rnætti
að orði komast. Það er þýðingarmikið að
gera 'sér þess fulla grein, að granítkaflinn í
Pýramidanum rnikla er „hinn innri helgi-
dómur“, og konungssalurinn er „hið allra
helgasta“ í pýramidanum.
T TÉR fylgir með skýringarmynd af neðan-
jarðarsalnunr í Pýramidanum mikla, þar
sem hægt er að sjá öll helztu ártölin, sem
þar er að finna. Ennfremur fvlgir tafla, er
sýnir spádómsdaga pýramidans, þá er tákna
hnignun, fall og eyðingu nazismans á tíma-
bilinu frá 1941—1945. Vér birtum opinber-
lega allar þessar dagsetningar löngu áður en
atburðirnir gerðust. Sannanlega birtum við
sumar þeirra sex árum áður en það stríð
hófst, sem nú er ný lokið. Og nú, þegar
allir þessir atburðir heyra sögunni til, er at-
hyglisvert að lesa hvað blöðin háfa nú að
segja í yfirlitsgreinum sínum og hugleiðing-
um út af falli nazismans og frelsun Bret-
lands, og sjá hversu vel það kemur heim
við það, sem vér áður höfum um þetta sagt.
Það kemur þá í Ijós, að þeir, sem þessar
greinar skrifa, benda einmitt alveg sérstak-
lega á dagsetningar, sem eru mjög nálægt
þeim, sem ég hef bent á í töflunni, sem ég
áður nefndi og fylgir grein þessarr.
Hr. William P. Fraser hefur, í þessu sam-
bandi, bent nrér á.grein eftir A. J. Cunn-
ings í „News Chronicle" 8. maí 1945 og úr
þeirri grein eru teknar eftirfarandi tilvitn-
anir:
„Hjálp Bretlands kom 22. júní 1941,
þegar Hitler réðist á Rússland. Sú ör-
lagaríka athöfn réði úrslitum í Evrópu-
styrjöldinni, þótt fáir veittu því þá at-
hylgli."
„Fyrir okkur á Bretlandi var 6. júní 1944
hinn mikli dagur. Þann dag fundum við
í fyrsta sinn, að við vorum raunverulega
frjáls aftur og skuggi óvinarins lá ekki
lengur eins og farg yfir vesturvígstöðv-
unum. Þennan dag — D-daginn —, fóru
fram stórkostlegustu hernaðaraðgerðir á
sjó, í lofti og á landi, sem sagan enn kann
að greina frá, er hin sameiginlega brezk-
ameríska innrás var gerð í Normandí og
brotist var gegnum Vesturvegginn.“
„Aðeins ein tilraun var gerð til þess að
reka oss til baka, hin misheppnaða, en
hættulega sókn Rundstedts í Ardenna-
fjöllum. En jafnskjótt og sú hræðilega
sókn var stöðvuð, hófum vér úrslitasókn-
ina að vestanverðu. Undir stjórn Mont-
gomerys marskálks fór 2. brezki herinn
og 9. ameríski herinn yfir Rín hinn 7.
marz 1945. Fáum klukkustundum síðar
fór Winston Churchill, revkjandi vindil
sinn, á litlum vélbáti einnig austur yfir
Rín. Það ferðalag hlýtur að hafa verið
stórkostlega táknrænt fvrir þennan óbug-
andi leiðtoga vorrar stríðandi þjóðar.
Hann vissi það, sem aðrir og vita nú,
að það var förin yfir Rín, en ekki taka
Berlínarborgar, sem táknaði hinn algjöra
ósigur hinnar svívirðilegu árásar á rétt
mannkynsins til að lifa frjálsu lífi.“
•
A 7ÉR væntum þess, að þessi augljósa upp-
’ ■ fylling á spádómum Pýramidans mikla,
muni, af öllum fylgjendum þessa málefnis,
verða skoðuð sem kærkomið tækifæri og
bending um að hefja enn frekari sókn, en
verið hefur, fyrir þessu málefni og á þann
hátt að kynna sem flestum hina dásamlegu,
guðlegu opinberun, sem Pýramidinn mikli
varðveitir.
DAGRENNING