Ský - 01.02.2008, Qupperneq 6

Ský - 01.02.2008, Qupperneq 6
 ský | 1. tbl. 2008 Útgefandi: Heimur hf. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Benedikt Jóhannesson og Jón G. Hauksson Útlitshönnun: Heimur hf. Ljósmyndir: Geir Ólafsson, Páll Stefánsson, Páll Kjartansson og fleiri Blaðamenn/greinarhöfundar: Bjarni Brynjólfsson, Erla Gunnarsdóttir, Guðmundur G. Þórarinsson, Hilmar Karlsson, Jónatan Garðarsson, Lízella, Ómar Ragnarsson, Páll Stefánsson, Sigrún Davíðsdóttir, Svava Jónsdóttir. Auglýsingastjóri: Vilhjálmur Kjartansson Prentun: Ísafold hf. Heimur hf. – Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavík. Sími: 512-7575 sky , 1.tbl.2008 Virðing stjórnmálamanna Það getur verið erfitt að vera í sviðsljósinu. Stjórnmálamenn verða oft fyrir óvæginni umfjöllun en það á við um marga aðra sem eru vel þekktir. Listamenn eru stöðugt að leggja verk sín í dóm almennings og íþróttamenn í fremstu röð þurfa sífellt að standa undir væntingum sem ekki eru alltaf raunhæfar. Íslendingar ætlast til mikils af sínum mönnum. Margt ungt fólk sem hefur keppst við að verða frægt er fljótt að fá sér leynisímanúmer. Og ekki bara vegna þess að það er töff að geta sagst vera með óskráð númer. Stundum á almenningur rétt á því að gera kröfur. Fólk sem hefur markvisst klifrað upp á við á sínu sviði getur ekki búist við því að geta brugðið yfir sig huliðshjálmi þegar slíkt hentar. Stjórnmálamenn eru kannski þeir aðilar sem eru helst í eldlínunni allan sólarhringinn, árum og áratugum saman. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra vék að þessu á heimasíðu sinni 18. febrúar síðastliðinn þegar hann skrifaði: „Aðgát skal höfð í nærveru viðkvæmra sálna.“ Össur kemur þarna með þarfa brýningu. Það er svo sannarlega ekki ástæða til þess að sparka í stjórnmálamenn eða aðra þegar þeir hafa ekkert til saka unnið annað en vinna sitt starf. Hins vegar geta þeir sem kosnir eru til ábyrgðar ekki búist við því að Alþingi eða borgarstjórn sé eins og verndaður vinnustaður þegar mikil átök eru og sviptingar. Oftast hafa stjórnmálamenn sem efnt hafa til stjórnarsamstarfs reynt að leysa úr ágreiningi sín á milli án þess að til stjórnarslita kæmi. Frá árinu 1983 hefur ríkisstjórnarsamstarfi aðeins einu sinni verið slitið (árið 1988 þegar Jón Baldvin og Steingrímur sögðu skilið við Þorstein Pálsson). Borgarstjórnarsamstarfi hafði aldrei verið slitið fyrr en haustið 2007. Oft hefur auðvitað hrikt í þegar einstaklingar með ólíkar skoðanir vinna saman en oftast hafa þeir náð lendingu sem ekki hefur ratað á spjöld sögunnar. Það er hollt fyrir þjóðarsálina þegar stjórnmálamenn hafa þann þroska að setja stöðugleika ofar eiginhagsmunum. Staðreyndin er nefnilega sú að í hvert skipti sem stjórnmálamenn sparka með ófyrirleitnum hætti hver í annan setur stjórnmálin niður þó að einstaka æstur stuðningsmaður klappi sínum manni lof í lófa. Slíkt klapp endist yfirleitt ekki lengi. sky, Benedikt Jóhannesson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.