Ský - 01.02.2008, Page 19
1. tbl. 2008 | ský 1
Raggi Bjarna
Ragnar eigið lag við ljóðið Barn eftir Stein Steinarr, en hann samdi
lagið að beiðni Svavars Gests 1968 þegar Savannatríóið var að leita
að lögum fyrir eina af plötum sínum. Ragnar hefur samið nokkur
lög í gegnum tíðina en lítið flíkað þeim hæfileikum sínum og að
mestu haldið sig við að túlka lög annarra höfunda eins og þegar
hann gerði dúettaplötu með Þuríði Sigurðardóttur 1976.
R.B. hljómplötur
Þegar flestir héldu að Ragnar væri um það bil að setjast í helgan
stein 1999 stofnaði hann útgáfufyrirtæki, R.B. hljómplötur.
Hann fékk unga tónlistarmenn til liðs við sig og gerði plötuna
Ragnar Bjarnason, Hin hliðin; Við bjóðum góða nótt. Þar söng
hann nokkur uppáhaldslög en titillagið Við bjóðum góða nótt
hefur fylgt honum frá því að faðir hans samdi það 1939. Meðan
Ragnar var með eigin hljómsveit endaði hann alla dansleiki á að
syngja þetta lag. Platan fékk frábærar viðtökur og Ragnar ákvað
að halda þessu áfram. Ragnar hélt veglega upp á 70 ára afmælið
sitt í september 2004 með því að fylla Hótel Ísland í þrígang.
Þar hélt hann uppi stanslausri skemmtun í rúma þrjá tíma ásamt
gömlum samstarfsmönnum og félögum úr Sumargleðinni og
yngra tónlistarfólki sem hann hafði ekki starfað með áður. Í
kjölfarið gerði hann plötuna Vertu ekki að horfa; Afmælisútgáfa
sem seldist í rúmlega 10.000 eintökum. Þar söng hann lagið
Flottur jakki sem varð gríðarlega vinsælt meðal ungs fólks. Síðan
þá hefur Ragnar verið fastagestur á framhaldsskólaskemmtunum
víðsvegar um landið. Lagið Vertu ekki að horfa var um tíma nefnt
þjóðsöngurinn vegna þess að öll þjóðin var með það á heilanum
og stöðugt er verið að biðja Ragnar um að syngja þetta lag.
Hann hefur gefið út þrjár breiðskífur til viðbótar á undanförnum
þremur árum: Með hangandi hendi 2005, Vel sjóaður 2006 og
jólaplötuna Gleðileg jól með Ragga Bjarna 2007.
Stórtónleikar framundan
Ragnar er ekkert á því að slaka á. Hann kemur fram allar helgar
ýmist einn eða með Þorgeiri Ástvaldsyni og fleiri tónlistar-
mönnum. Þessa dagana er hann að undirbúa stórtónleika
sem verða haldnir í Háskólabíói 17. maí 2008. Hann er
með nýja plötu á teikniborðinu og aðeins byrjaður að
leggja drög að 75 ára afmælinu sem verður haustið 2009.
Ragnar hefur nokkrum sinnum verið heiðraður fyrir
tónlistariðkun sína. Hann fékk sérstaka viðurkenningu
Stjörnumessu DV og Vikunnar 1980 sem söngvari ársins
í 30 ár. Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna
hlaut hann 1994 og var sæmdur gullmerki FÍH árið 2004.
Ragnari var veitt fálkaorðan 1. janúar 2005 og útnefndur
Borgarlistamaður Reykjavíkur 2007. Sama ár hlaut hann
sérstaka viðurkenningu frá Breiðholtssamtökunum fyrir
áralangt starf sitt sem skemmtikraftur.
Margs að minnast
Ragnar minnist langs ferils með ánægju þegar hann
horfir um öxl. Hann hefur verið lánsamur og fengið að
starfa með góðu tónlistarfólki frá fyrstu tíð. Þetta hófst
á æskuheimilinu þar sem hann kynntist frumherjunum
sem störfuðu með foreldrum hans. Faðir Ragnars leyfði honum
að sniglast í kringum sig alla tíð, hvort sem það var á dansleikjum,
tónleikum, í revíunum eða Útvarpinu. Ragnar drakk í sig
andrúm og stemningu líðandi stundar og er sannfærður um að
faðir hans hafi vitað hvert hann stefndi í lífinu. Hann leyfði
Ragnari að spreyta sig á trommurnar, sá til þess að hann lærði
undirstöðuatriðin í píanóleik og veitti honum fyrsta opinbera
tækifærið sem söngvari, þegar Ragnar söng lagið Barcelona í
útvarpssal 1950. Tíminn í KK-sextettinum var eins og að stunda
framhaldsnám, sem og starfið með Svavari Gests, en skóli lífsins
hefur skilað Ragnari mestu. Hann hefur starfað með fjölda
manns á löngum ferli en aðspurður um hver þeirra hafi verið
minnisstæðastur segir hann: ,,Elly Vilhjálms er mjög ofarlega í
huga. Hún var dýrðleg stúlka og unun að vinna með henni. Hún
var svo létt og skemmtileg og ótrúlega góð söngkona og gat sungið
hvað sem var. Unga fólkið er að uppgötva hvað hún var merkileg
söngkona og það skiptir miklu máli. Allt þetta lið hefur verið
frábært og ég hef átt yndislegt líf.“
Þjóðargersemi
Það er með ólíkindum að Ragnar skuli enn vera á fullu í
tónlistinni, kominn á 74. aldursár. Röddin er ótrúlega ungleg,
sjarmerandi krúnerastíllinn engu líkur og maðurinn sjálfur þvílík
þjóðargersemi að það er leitun að öðrum eins meistara. Fyrir þá
sem ekki kannast við tónlistarmanninn Ragnar Bjarnason má
geta þess að Ragnar er náunginn á ameríska kagganum sem birtist
með reglulegu millibili í bensínstöðvaauglýsingum í sjónvarpinu.
Þetta er maðurinn sem þjóðin hefur dáð og dýrkað lengur en elstu
menn og konur muna - töffarinn Ragnar Bjarnason. sky,
Leikhústilboð
Bo
rð
ap
an
tan
ir
í s
ím
a 4
61
-5
85
8
Njóttu lífsins
í hjarta Akureyrar
Hafnarstræti 92 - www.bautinn.is