Ský - 01.02.2008, Side 24
24 ský | 1. tbl. 2008
D
ísella býr ásamt eiginmanni sínum, Teddy Kernizan píanóleikara,
í New Jersey; á heimili þeirra eru einnig tveir hundar -
boxerhundurinn Raskal og Boris sem er franskur mastiff.
Æfingaaðstaðan er á heimilinu og þar undirbýr sópransöngkonan
sig fyrir sigra á tónlistarsviðinu.
Debut-tónleikar Dísellu í Bandaríkjunum voru 20. febrúar og eftir það
tóku við æfingar fyrir hlutverk hjá Metropolitan-óperunni; hún er varamaður í
nútímaóperunni Satyagraha eftir Philip Glass sem verður frumsýnd í apríl.
,,Óperan, sem fjallar um Gandhi í Suður-Afríku, var samin árið 1981 og
hefur aldrei verið sýnd í Bandaríkjunum. Þetta er nútímatónlist sem ég hef
hingað til yfirleitt ekki verið hrifin af. Í henni eru miklar endurtekningar og ólíkt
öðrum óperum er ekki endilega verið að leggja áherslu á ,,flugeldasýningar“ hjá
söngvurunum heldur er meira verið að kyrja. Þetta verk laumast samt að manni
og verður áhugaverðara í hvert skipti sem ég kem að því aftur.“
Silfraðir og gylltir tónar
Hjördís Elín Lárusdóttir sópransöngkona,
betur þekkt sem Dísella, klifrar nú upp
metorðastigann en hún hlaut í fyrra
starfssamning við Metropolitan-óperuna
í New York. Madame Butterfly
er draumahlutverkið.
Texti: Svava Jónsdóttir • Myndir: Ýmsir
Metropolitan
óperan í New York.