Ský - 01.02.2008, Page 26
2 ský | 1. tbl. 2008
Söngvararnir syngja á forn-hindí
Dísella verður í hlutverki ritara Gandhis, frú Schlesen. ,,Óperan
er mjög óhefðbundin og það er ekki beint hægt að kynnast
karakternum í gegnum textann því hann fjallar um allt það sem
Gandhi predikaði.“
Tónlistin í blóðinu
Dísella kynntist tónlistarheiminum snemma en faðir hennar var
Lárus heitinn Sveinsson trompetleikari. Hún byrjaði að læra á
trompet þegar hún var átta ára og lærði á það hljóðfæri í sex ár.
Hún fór að læra á píanó þegar hún var 15 ára og hætti fjórum
árum síðar.
,,Ég var með stórkostlega kennara, bæði á trompet og píanó.
Pabbi kenndi mér á trompet og Ólafur Vignir Albertsson og
Jón Sigurðsson kenndu mér á píanó. Ég hafði þó aldrei trú á
því að ég gæti gert þetta að atvinnu. Ég var hrædd við agann
sem tónlistarmenn þurfa að hafa og ég veit eiginlega ekki ennþá
hvernig ég fór svo allt í einu að læra söng.“
Faðir Dísellu gaf henni einu sinni kassettutæki og tvær spólur
sem hún segir að hún hafi spilað endalaust. ,,Ég hafði svo gaman
af þeim en þetta var besta gjöfin sem ég hafði fengið. Ég var
alltaf að spila tónlist. Svo notaði ég þetta kassettutæki til að
taka upp þegar ég söng; ég á eldgamlar spólur, frá því ég var um
fimm ára að ,,semja“ lög sem er mjög fyndið að hlusta á í dag.
Ég og Sif frænka mín tókum líka upp lög saman og stofnuðum
hljómsveitir. Svo sungum við systurnar alltaf saman þegar við
vorum í bílnum. Ég hélt bara að allir gerðu þetta. Það var þó
ekki bara klassísk tónlist sem ég hlustaði á.“
Þrátt fyrir áhrif tónlistarinnar á heimilinu dreymdi Dísellu
um að verða apótekari. ,,Ég og Magga, vinkona mín, höfðum
planað þetta. Við ætluðum að eiga saman apótek og búa saman
í tvíbýli með kallana okkar, börnin, sex hunda, fjóra ketti, tíu
hesta, kanínur, fiska og ég veit ekki hvað. Við vorum meira
að segja búnar að teikna húsið, innréttingarnar og allt heila
klabbið.“
Örlögin réðu förinni
Dísella tók stúdentspróf frá Kvennaskólanum og hugðist fara
annaðhvort í sálfræði eða heimspeki. Örlögin ætluðu henni
annað og skráði hún sig í Söngskólann í Reykjavík en þaðan
útskrifaðist hún sumarið 2002.
,,Ég fór til Vínar um vorið en mig langaði til að fara í skóla
þar. Ég var komin í samband við söngkennara þar sem vinafólk
pabba þekkti. Hann hlustaði á mig fyrsta daginn og sagði að
Dísella kynntist tónlistarheiminum snemma en faðir hennar var Lárus heitinn Sveinsson trompetleikari.