Ský - 01.02.2008, Blaðsíða 27

Ský - 01.02.2008, Blaðsíða 27
þetta yrði ekkert mál fyrir mig. Ég veit ekki hvaða öfl voru að verki en ég fékk ofnæmiseinkenni tveimur dögum fyrir inntökuprófið en það er eitthvað sem ég hafði aldrei á ævinni upplifað áður. Ég reyndi samt að syngja í inntökuprófinu en það gekk hræðilega og ég komst ekki inn í skólann.“ Laura Brooks Rice, bandarískur söngkennari, kom til Íslands þá um haustið og hélt master class-námskeið. Dísella ætlaði upphaflega ekki að skrá sig í það. ,,Eftir að einn kennarinn við Söngskólann hafði hringt í mig tvisvar sinnum til að hvetja mig til þess að skrá mig, gerði ég mér grein fyrir að þetta væri kannski eitthvað sem mér væri ætlað að gera. Og viti menn - mér leist svo vel á hana að ég fór til Bandaríkjanna í inntökupróf við Westminster Choir College of Rider University, það gekk vel og inn komst ég.“ Þar kynntist Dísella Teddy, sem þá var nemandi við píanódeild skólans, og var það ást við fyrstu sýn. Dísella stundaði nám við skólann í tvö ár og útskrifaðist þaðan með meistaragráðu. Hún lagði meðal annars áherslu á óperur eftir meistara Mozart en þær eiga vel við rödd hennar. Dísella hafði landvistarleyfi til ársins 2008 en hún var með nemenda-visa. Reglur voru þær að ef hún færi af landi brott mætti hún ekki koma aftur til Bandaríkjanna. Hún mátti ekki heldur vinna. Þannig stóðu málin í átta mánuði og það hafði áhrif á hana. ,,Ég sat þess vegna bara heima og gerði ekki neitt. Þetta var hræðilegur tími og mér leið eins og ég væri fangi, föst inni í minni eigin stofu að horfa á sjónvarpið daginn út og inn. Mér leið svo illa að ég hafði næstum því enga löngun til að æfa mig.“ Ótrúlegur heiður Dísella fór að taka þátt í keppnum sem henni gekk vægast sagt vel í. Fyrsta keppnin var Astral Artistic Services National Auditions sem haldin var í Fíladelfíu. Þá tók hún þátt í keppni í Los Angeles og komst þar í lokaúrslit. Hún tók þátt í keppninni Operalia á Spáni en sú keppni er haldin á vegum stórtenórsins Placido Domingo. Þar komst hún í undanúrslit. Keppnirnar komu henni þangað sem hún er í dag - með starfssaming við Metropolitan-óperuna í New York sem varamaður í hlutverki frú Schlesen í óperunni Satyagraha. ,,Metropolitan-óperan er eitt virtasta óperuhús í heimi svo það að fá að syngja þar er ótrúlegur heiður. Maður verður að taka þátt í keppnum til að beina athygli að sjálfum sér. Ég var á síðasta séns að skrá mig í Metropolitan-keppnina því aldurstakmarkið var 30 ár svo það var bara að duga eða drepast - ,,go for it“ eða sjá alltaf eftir því að hafa aldrei prófað. Ég trúði því ekki sjálf hversu langt ég komst á endanum. Mér fannst ég ekkert endilega tilbúin þegar ég skráði mig upphaflega. Svo hafði ég starfssamning upp úr þessu sem skiptir mestu máli. Ég held að óhætt sé að segja að allir sem læra óperusöng vilji syngja í Metropolitan-óperunni að minnsta kosti einhvern tíma. Þetta er eins og með hvern annan vinnustað - maður vill að sjálfsögðu vinna á besta staðnum, við bestu aðstæðurnar og með besta kaupið.“ Framlengingarsnúra Þegar Dísella er spurð hvað tónlistin sé í huga hennar segir hún að hún vilji alltaf hafa tónlist í kringum sig. ,,Ég er ekki endilega að tala um klassíska tónlist heldur bara tónlist yfir höfuð. Þetta er eitthvað sem maður gerir án þess að pæla í því - kveikja * græjunum * morgnana og þegar maður fer inn í bíl, * meðan maður er að vinna ... Sumir vilja bara popp-tónlist, aðrir rokk en ég er alæta á tónlist. Það fer bara eftir því í hvernig skapi ég er hvað ég vel mér að hlusta á. Mér finnst tónlist vera nokkurs konar framlengingarsnúra á tilfinningar hvers og eins. Þess vegna er svo gott að hluta á réttu tónlistina á rétta tímanum - það Hagstættmeð fyrirtækjasamningi Hertz Sama hagstæða verðið allt árið 522 44 00 • www.hertz.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 4 09 65 0 2/ 08 Dísella 1. tbl. 2008 | ský 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.