Ský - 01.02.2008, Síða 33

Ský - 01.02.2008, Síða 33
1. tbl. 2008 | ský 33 Þ eir sem til þekkja segja þau bæði ákaflega samviskusöm og dugleg að stunda dansinn, enda fátt annað sem kemst að hjá þeim en æfingar og aftur æfingar. Því liggur beinast við að spyrja hvernig þetta byrjaði allt saman hjá þeim. „Ég byrjaði þegar ég var sex ára gamall. Aðalástæðan fyrir því að ég byrjaði er sú að stjúpmóðir mín, Auður Haraldsdóttir, er danskennari og hún vildi að ég prófaði dansíþróttina og sæi hvernig mér fyndist og ég hef bara æft dans síðan,“ útskýrir Sigurður Már og Sara Rós segir jafnframt; „Þegar ég var sex ára gömul byrjaði ég að æfa ballett og gerði það í eitt ár. Síðan fannst mömmu kennslugjöldin vera orðin of há svo hún fann eitthvað annað handa mér og það var samkvæmisdans. Fyndið að segja frá því vegna þess að kostnaðurinn núna er margfalt hærri en kennslugjöldin í ballettinum voru!“ Vináttan skiptir meginmáli Þau Sigurður Már og Sara Rós fundu fljótlega að dansinn átti vel við þau en í kjölfar þess að dansfélagi Sigurðar Más forfallaðist eitt sinn fóru þau tvö að dansa saman og þá varð ekki aftur snúið. „Það mætti vel segja að við náum mjög vel saman. Við höfum dansað saman í átta ár svo við erum einnig orðin mjög góðir vinir. Það er allavega ekki algengt að danspör endist svona lengi,“ segir Sara Rós brosandi og Sigurður Már bætir við; „Við vorum sjö og átta ára gömul þegar við byrjuðum að dansa saman og það er mjög sjaldgæft í dansheiminum að dansa svo lengi við sama einstaklinginn. Ég held að vináttan skipti hér meginmáli.“ Sigurður Már og Sara Rós dansa alla tíu samkvæmisdansana sem samanstendur af fimm Ballroom-dönsum; enskum vals, tangó, vínarvals, foxtrot og quickstep, og fimm Latin-dönsum; sömbu, cha cha cha, rúmbu, paso doble og jive. „Við dönsum alla þessa tíu dansa sem flokkast undir Standard og Latin en sumir kjósa að einbeita sér einungis að öðrum flokknum. Yfirleitt höfum við verið sterkari í Latin-dönsunum en Standard-dansarnir eru orðnir betri en áður hjá okkur,“ útskýrir Sara Rós. Sætir sigrar Sem fyrr sagði hefur dansparið unnið til fjölda verðlauna fyrir frammistöðu sína á dansgólfinu. Í byrjendaflokki voru þau yfirleitt í úrslitum en náðu aldrei hærra en 5. og 6. sæti. Fyrsta gullið þeirra var síðan í höfn eftir Lottó-keppnina svokölluðu í nóvember árið 2002 í Latin-dönsum. „Eftir Lottó-keppnina fór þetta allt upp á við og það má segja að við höfum unnið mest allt eftir það. Í framhaldinu náðum við 2. sæti á London Open árið 2003 sem var mjög skemmtilegt og fyrsti sigurinn okkar í útlöndum. Það sem stendur þó upp úr hingað til er þegar við náðum 1. sæti í Latin-dönsum á Copenhagen Open árið 2007 og 2. sæti í tíu samkvæmisdönsum á sama móti,“ segir Sigurður Már og Sara Rós samsinnir félaga sínum yfir mikilvægi þessara glæstu sigra en bætir við: „Einn af eftirminnilegustu sigrunum að mínu mati var samt á bikarmeistaramótinu árið 2005 þegar við unnum Standard-dansana eftir bráðabana milli tveggja para. Þá var orðið frekar langt síðan við fengum fyrsta sætið og því var sigurinn sætur.“ Mikilvægt að hafa gott sjálfstraust Sem fyrr sagði á dansinn hug þeirra allan en að sögn Söru Rósar fer allur peningur, áhugi og metnaður þeirra í dansiðkunina. Snerpa, úthald og útgeislun á dansgólfinu Það geislar af dansparinu Sigurði Má Atlasyni og Söru Rós Jakobsdóttur en þrátt fyrir ungan aldur hafa þau náð mjög góðum árangri í danskeppnum hér heima og erlendis. Það var fyrir einskæra tilviljun að þau byrjuðu að dansa saman fyrir átta árum. Texti: Erla Gunnarsdóttir • Myndir: Geir Ólafsson Dans Ungir dansarar

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.