Ský - 01.02.2008, Page 34
34 ský | 1. tbl. 2008
Sigurður Már hefur þó gaman af að leika sér í golfi á
sumrin þegar tími gefst til.
„Þegar maður er kominn á kaf í dansheiminn er ekki
aftur snúið. Fyrir mér er dans ekki bara íþrótt heldur
líka list, það er svo rosalega mikil vinna á bak við þetta.
Það er til dæmis mikið meiri skemmtun í að horfa á
dans heldur en margar aðrar íþróttir. Þannig orða margir
utanaðkomandi þetta oft því það er svo mikill klassi
yfir þessu,“ útskýrir Sara Rós þegar hún er spurð hvað
sé svona heillandi við dansinn. Sigurður Már hlustar
athugull á og segir jafnframt: „Ég myndi segja að það væri
allur félagsskapurinn, keppnisferðirnar og keppnirnar,
hreyfingin og tilfinningin að vinna sem gerir þetta svo
skemmtilegt.“
Þau stefna hátt á dansgólfinu og er Sigurður Már
svo brattur að nefna jafnvel heimsmeistaratitil á meðan
Sara Rós einblínir á næstu verkefni, þar á meðal
Íslandsmeistaramótið þar sem þau munu án efa keppa
til sigurs.
„Ég ætla mér að ná langt í framtíðinni en það verður
mikil barátta um Íslandsmeistaratitilinn því við erum
komin upp í nýjan flokk,“ útskýrir Sara Rós glöð í bragði
og blaðamanni verður ljóst hversu mikilvægt sjálfstraustið
er þessum ungu og bráðefnilegu dönsurum, enda kemur
það á daginn í lok samtalsins þegar þau eru innt eftir því
hvað maður þurfi að bera til að verða góður dansari:
„Maður þarf að vera nokkuð opinn, með góðan takt,
snerpu, úthald og útgeislun á dansgólfinu að mínu mati,“
segir Sigurður Már og Sara Rós segir jafnframt; „Það sem
mér finnst mikilvægast er gott sjálfstraust og sjálfsagi og
auðvitað að geta notið dansins því þá getur maður allt sem
maður ætlar sér.“ sky,
Sara Rós Jakobsdóttir
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Áhugamál: Aðallega dans, hitta vini mína,
skemmta mér og njóta lífsins.
Gæludýr: Ekkert nema litlu systkini mín, ha ha.
Uppáhaldsmatur: Mér finnst mjög gaman að borða
góðan mat, ég er alls ekki matvönd. Ég held
reyndar að það sé bara sparimaturinn hjá ömmu,
lambalæri með brúnuðum kartöflum og meðlæti.
Uppáhaldsdrykkur: Íslenska vatnið er best.
Uppáhaldsdansari: Yulia Zagoruychenko.
Mottó: Viljinn er allt sem þarf.
Sigurður Már Atlason
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Áhugamál: Dans, golf, fótbolti og að vera með
vinum mínum.
Gæludýr: Hundurinn Snót.
Uppáhaldsmatur: Mér finnst bara næstum allur
matur góður en ég verð samt að segja að
maturinn hennar ömmu toppi allt.
Uppáhaldsdrykkur: Vatnið klikkar aldrei.
Uppáhaldsdansari: Slavik Kryklyvyy í Latin-dönsum
og Mirko Gozzoli í Ballroom-dönsum.
Mottó: Hver er sinnar gæfu smiður og æfingin
skapar meistarann.
Auður Haraldsdóttir, danskennari:
Í fremstu röð
samkvæmis-
dansara á Íslandi
„Fljótlega kom í ljós að Sigurður Már og Sara Rós náðu
vel saman og höfðu áhuga á dansi. Frá unga aldri hafa
þau verið í fremstu röð samkvæmisdansara á Íslandi.
Einnig hafa þau staðið sig mjög vel í keppnum erlendis.
Þau hafa góða tækni, útgeislun í dansinum og njóta
þess að hafa dansað alltaf saman þar sem þau þekkja
hvort annað mjög vel. Einnig hafa þau sterkan fótaburð
sem gerir það að verkum að öll tækni verður betri og
samspil milli þeirra auðveldara. Þeirra dansferill er mjög
góður, þau hafa unnið marga Íslandsmeistaratitla og
einnig hafa þau hlotið 1. sæti á Copenhagen Open þar
sem örfá íslensk danspör hafa unnið. Þau eru áhugasöm
og dugleg og ég spái því að þau eigi eftir að ná langt
í íþróttinni því þau eru skipulögð og stunda æfingar
mjög vel.“
Dans