Ský - 01.02.2008, Side 39

Ský - 01.02.2008, Side 39
1. tbl. 2008 | ský 3 stóð þar yfir alþjóðlegt skákmót. Fischer kom þar við, gekk inn í salinn og kastaði augum á sýningarborðin. Á einu borðinu tefldu sovéski stórmeistarinn Leonid Stein og enski stórmeistarinn Raymond Keene. Fischer leit á borðið í nokkrar sekúndur og sagði síðan: Stein er með tapaða stöðu. Rétt í því kom upp skilti, samið um jafntefli. Fischer stormaði út og sagði að þannig hefðu sovésku stórmeistararnir það, byðu jafntefli í töpuðum stöðum og hinir þyrðu ekki að tefla áfram. Daginn eftir var Fischer spurður um þessa skák. Hann tók þá upp vasatafl og stillti stöðunni upp og rakti nokkrar leiðir og sýndi að staða Steins var töpuð. Þetta er eitt dæmið um hve fljótur hann var að átta sig á stöðu sem jafnvel aðrir stórmeistarar töldu jafntefli. Um Bobby Fischer og keppnir hans hafa verið ritaðar um 150 bækur, líklega 50 sjónvarpsþættir gerðir um manninn og BBC valdi einvígi hans við Boris Spassky í Reykjavík 1972 sem einn af 20 athyglisverðustu atburðum síðustu aldar og gerði sérstakan þátt um einvígið. Nú berast fréttir frá Hollywood um að til standi að gera kvikmynd um einvígið 1972 og meistarann mikla. Síðustu árin á Íslandi stundaði hann mikið fornbókaverslanir, einkum verslunina á Hverfisgötu. Þetta þótti svo merkilegt að bóksalinn kom nokkrum sinnum fram í fjölmiðlum og sagði frá kynnum sínum af Fischer. Þegar Fischer var sagt frá því brosti hann og sagði: „He is becoming a celebrity.“ Fischer hafði mikinn áhuga á mannkynssögu og virtist mikið lesa um menn sem af einhverjum ástæðum höfðu lent upp á kant við Bandaríkjastjórn eins og hann sjálfur. Ofarlega var honum í huga að hann hafði glatað þeim eigum sínum sem honum var annt um. Hann hafði geymt þær í geymslu sem hann tók á leigu en á útlegðarárum hans var geymslan brotin upp og eigurnar seldar á uppboði, þar á meðal verðlaunapeningur hans frá 1972. Borið var við að leiga hefði ekki verið greidd en Fischer bar það til baka. Hann hafði mikinn áhuga á að ræða um geimverur og velti mikið fyrir sér hugsanlegri heimsókn vera frá öðrum hnöttum til jarðarinnar og las heilmikið um þau efni. Fischer forðaðist mjög fjölmiðlamenn og ljósmyndara. Skáksamband Íslands hélt málþing í tengslum við 70 ára afmæli Friðriks Ólafssonar. Spassky kom þá til landsins ásamt eiginkonu sinni og hélt erindi ásamt fleirum um feril Friðriks. Fischer var þá á Íslandi en kom ekki á málþingið. Þeir Friðrik og Spassky ákváðu að hitta Fischer ásamt eiginkonum sínum og borða með honum hádegisverð. Helgi Ólafsson stórmeistari, sem var í góðum tengslum við Fischer, hafði samband við hann. Ákveðið var að borða á Skólabrú, en þar sem um hádegisverð var að ræða á sunnudegi var veitingahúsið lokað og eigandinn opnaði sérstaklega til þess að þessir fornu vinir gætu hist og borðað á stað þar sem þeir væru ekki ónáðaðir. Helgi kom þó einn til málsverðarins þar sem Fischer féllst ekki á að koma, taldi að þarna gæti verið um gildru að ræða og ljósmyndarar og fjölmiðlamenn væru á staðnum. Þeir Helgi og Spassky fóru því heim til Fischers og Spassky tókst að fá Fischer til þess að borða með þeim. Þegar þeir félagar komu í Skólabrú opnaði Spassky inn í hin ýmsu salarkynni og sagði: „Þú sérð Bobby, hér eru engir.“ Fischer gekk úr skugga um það en vildi fá dregið fyrir alla glugga því ljósmyndarar gætu verið í trjám eða nærliggjandi húsum og séð inn um gluggana. Að þessum undirbúningi loknum var sest að snæðingi en Fischer hafði með sér í málsverðinn útvarp og hlustaði á það framan af. Síðan fór allt í eðlilegan farveg og þau áttu öll þarna góða stund, en svo langan tíma tók allt þetta að hádegisverðinum lauk um klukkan 16.30. Á síðasta ári tók heilsu hans að hraka. Erfitt var að fá hann til þess að fara til læknis en hann hafði þá skoðun að líkaminn ætti að lækna sig sjálfur. Hann hafði mjög ákveðnar skoðanir um mataræði og vildi borða hollan mat. Hann sótti lítið hinar ágætu íslensku sundlaugar þar sem hann taldi að klórblöndun í vatnið væri ekki heilsusamleg. Lyktnæmi hans var mikið, sem og heyrnarnæmi. Hann var mjög ákveðinn varðandi val á íverustað að þar væri ekki hávaði. Sú saga er sögð að íslenskir vinir hans höfðu fundið honum næturstað, en hann taldi sig ekki geta sofið vegna hávaða. Enginn heyrði neitt en eftir talsverða eftirgrennslan kom í ljós að klukka gekk í nærliggjandi herbergi og ónáðaði meistarann. Sem fyrr segir var Robert J. Fischer einfari og forðaðist fjölmiðla og fjölmenni. Síðasti leikur meistarans í lífi hans eða dauða kom ekki síður á óvart en fyrra lífshlaup hans. Hann var jarðaður í kyrrþey í kirkjugarði við litla sveitakirkju, Laugardælakirkju í Flóa. Aðeins um fimm manns munu hafa verið viðstaddir og sóknarprestur kirkjunnar vissi ekki einu sinni um athöfnina. Margir vinir hans og aðdáendur sem vildu votta meistaranum virðingu fréttu aðeins af jarðarförinni eftir að allt var um garð gengið. Enn er enginn legsteinn eða minnisvarði við gröfina. Ekkert sem minnir á eða segir til um meistarann sem þarna liggur. Óneitanlega kallar þetta fram í hugann ótrúlega útlegð áratugum saman og einveru þessa mikla meistara hins sextíu og fjögurra reita borðs. Þó er eins og þytur vindsins í kirkjuburstinni þylji orð guðs yfir moldum þessa einstæða manns. sky, Skák

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.