Ský - 01.02.2008, Síða 44
44 ský | 1. tbl. 2008
Aðspurð hvort þau muni keppa fyrir Hagaskóla að ári liðnu segja strákarnir það ekki svo ólíklegt. Til að komast í liðið
þarf að þreyta inntökupróf og segjast þau
öll hafa orðið hissa þegar þau fengu að
vita, tveimur vikum eftir prófið, að þau
hefðu verið valin í liðið.
Ólafur: „Þetta var eiginlega tilviljun
hjá mér, ég var nýbúinn í íþróttum og
hafði séð auglýsingu um inntökupróf um
morguninn. Ég var nokkurn veginn á
báðum áttum hvort ég ætti að fara heim í
sturtu eða skella mér í prófið.“
Þegar ég spyr hvernig stemningin
sé í skólanum á keppnisdegi svarar
Auður:
„Stemningin byggðist upp með fleiri
sigrum og fyrir úrslitin í útvarpinu
var gríðarleg spenna. Ekkert var betra
en að heyra í öskrandi grænklæddum
stuðningsmönnum á Markúsartorginu.“
Krakkarnir segjast hafa kynnst ágætlega
í gegnum keppnina, en Jón og Ólafur eru
einnig bekkjarfélagar.
Fáið þið frí hjá kennurum þegar þið
eruð að undirbúa ykkur?
Auður: „Já, það er lykilatriði að vera
vel sofinn fyrir keppni, auk þess sem við
þurftum ýmislegt að stússa á keppnisdag.
Þá daga fengum við yfirleitt frí.
Mestmegnis var undirbúningurinn utan
skóla; við lásum heilmikið og æfðum í
jólafríinu.“
Skiptið þið niður hver lærir hvaða
svið, t.d. íþróttir, tónlist...?
Ólafur: „Já, það var eitt af því fyrsta
sem við gerðum. Ég sá um íslenska
sögu og íslenska landafræði, Jón fór yfir
mannkynssögu og almenna landafræði
og Auður var það sem við köllum
„ruslakista“, sá um ýmsar listgreinar, sem
og norræna goðafræði.“
Jón: „Við bundum okkur samt ekkert
alltof mikið við þessa skiptingu.“
FRAMHALDSSKÓLARNIR
KOMNIR Á HREINT
Þegar ég spyr um val á framhaldsskóla eru
svörin nokkuð afdráttarlaus:
Ólafur og Jón: „Já auðvitað, er
eitthvert val?! MR að sjálfsögðu!“
Auður: „Haha, MH fyrir mig!“
Hvað er skemmtilegast
við að vera í spurningaliði?
Ólafur: „Mér fannst skemmtilegast að
vinna; uppskera erfiðið.“
Jón: „Já, sigurvíman!“
Auður samsinnir strax: „Ójá!!“
Spurningalið Hagaskóla bar sigur úr býtum í Nema hvað?,
spurningakeppni grunnskólanna, í lok janúarmánaðar,
þegar það vann lið Árbæjarskóla í úrslitaviðureign. Sigurliðið
skipuðu þau Jón Áskell Þorbjarnarson, Ólafur Kjaran
Árnason (báðir 14 ára) og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir
(15 ára). Þau segjast hafa horft á Gettu betur með stjörnur í
augum þegar þau voru yngri en að öðru leyti stefndu þau ekki
endilega á að taka þátt í svipaðri keppni.
Gætu
auðveldlega
vanist
frægðinni!
Texti: Lízella • Mynd: Páll Kjartansson
Spuningakeppni grunnskólanna