Ský - 01.02.2008, Page 45
1. tbl. 2008 | ský 45
Leiðinlegasti fylgifiskur þess að vera
í spurningaliði segja þau vera langa
lestrardaga sem núna eru að baki.
Aðspurð hvort þau hafi
verið kvíðin fyrir keppni segja þau:
Auður: „Tíhí! Já, fyrir fyrstu keppnina
var maður nokkuð kvíðinn en svo vandist
þetta vel. Þó var ekki laust við nettan
fiðring fyrir úrslitin!“
Þegar ég spyr þau hvort þau hafi
fengið mikið hrós frá kennurum og
nemendum í skólanum segja þau:
Ólafur: „Já, og það er virkilega gaman
að því. Svo er líka stórskemmtilegt
þegar ókunnugt fólk vindur sér að
manni og spyr: „Vannst þú ekki
spurningakeppnina?“.
Auður: „Við gætum vel hugsað okkur að
venjast frægðinni!“
Mynduð þið mæla með að
krakkar kepptu að því að komast
í spurningalið, hvort sem það er í
grunnskóla eða menntaskóla?
Jón: „Já, það á hiklaust að láta á reyna ef
áhugi er fyrir hendi, þetta er nefnilega svo
skemmtilegt.“
Að lokum: Hverjir eru
framtíðardraumarnir?
Jón: „Byrja á því að vinna Nema hvað?
á næsta ári, síðan Gettu betur og stórar
áætlanir í mótun.“
Ólafur: „Ímyndaðu þér blöndu af Cesari
og Sókratesi.“
Auður: „Ég stefni hátt, ég hefði nú
gaman af Gettu betur til að byrja með
en svo koma heimsyfirráð sterklega til
greina.“ sky,
SIGuRLIð HAGASKÓLA
Frá vinstri: Jón Áskell
Þorbjarnarson, Auður Tinna
Aðalbjarnardóttir og Ólafur
Kjaran Árnason.