Ský - 01.02.2008, Side 50
50 ský | 1. tbl. 2008
Þ
egar ég var 6-7 ára á árunum 1946-7 heillaði
mig mjög saga af svonefndum gaselludreng,
sem sagt var að hefði alist upp barnungur hjá
þessum spretthörðu dýrum. Þetta uppeldi
hefði gert hann svo fótfráan að þegar hann
var fullvaxinn gat hann hlaupið miklu hraðar en nokkrir
aðrir menn. Þessi saga var hliðstæð sögunum af Tarzan apa-
bróður sem átti að hafa alist upp hjá mannöpum.
Einstök gullaldarár
Árin á eftir komu síðan gullaldarár íslenskra sprett-
hlaupara sem heilluðu jafnt unga sem gamla, enda fylgir
alltaf sérstakur ljómi og spenna spretthlaupum og tengist
þeim kitlandi æsingi hraðans sem fylgir því að sjá jörðina
æða á móti sér. Ýmsir þjóðþekktir Íslendingar hafa fengist
við spretthlaup. Sem dæmi má nefna að Grétar Þorsteins
son, forseti ASÍ, var landsliðsmaður á sínum tíma og Árni
Johnsen alþingismaður hljóp hundrað metrana á 11,0 sek-
úndum á sjötta áratugnum. Á gullaldarárunum var áhorf-
endaskari allan hringinn á Melavellinum á frjálsíþrótta-
mótum sem voru mun betur sótt en knattspyrnuleikir.
Það var svo sem ekki að undra því að á tímabili áttu
Íslendingar sex spretthlaupara í hópi þeirra allra bestu í Texti: Ómar Ragnarsson • Myndir: Ýmsir.
Afreksmenn
Ómar Ragnarsson, sem keppti í
spretthlaupi um árabil, velur hér tólf bestu
spretthlaupara Íslendinga síðustu sextíu
árin. Fjórir bestu spretthlaupararnir eru
Hilmar Þorbjörnsson, Haukur Clausen,
Hörður Haraldsson og Oddur Sigurðsson.
Í þessari grein má sjá að oft var mikil drama-
tík í gangi hjá íslensku gaselludrengjunum.
GASELLU DRENGIRNIR
Clausenbræður,
einstakt fyrirbæri í
íþróttasögu heimsins.