Ský - 01.02.2008, Side 55
1. tbl. 2008 | ský 55
og fann það ekki út fyrr en of seint að það var vegna rangs
mataræðis og skorts á B-vítamíni af því að hann borðaði
helst ekki brauð. Þá hafði hann ekki keppt í mörg ár og
misst snerpu en gerði í lok ferilsins góða atlögu að 400
metra Íslandsmetinu.
Norðurlandamet sem stóð í
meira 20 ár
Nú eru ótaldir fjórir gaselludrengir
sem sköruðu fram úr eftir 1970. Þá
komu til sögunnar þeir Vilmundur
Vilhjálmsson og Bjarni Stefánsson
sem sóttu hart að gömlu metunum og
hrundu tveimur þeirra. Í aðdraganda
Ólympíuleikanna í München 1972 kom Bjarni Stefáns
son metinu í 400 metra hlaupi niður í 46,76 sekúndur.
Í kjölfar hans kom Oddur Sigurðsson sem konungur
íslenskra spretthlaupara og ólympíufari og setti 1984 það
met í 400 metra hlaupi sem enn stendur, 45,36. Það var
jafnframt Norðurlandamet sem stóð í í meira en tuttugu
ár!
Síðastur í tímaröð íslensku gaselludrengjanna er síðan
Jón Arnar Magnússon, sá magnaði og fjölhæfi íþrótta-
maður sem var ekki aðeins í hópi tíu bestu tugþrautar-
manna heims þegar best gekk, heldur einn allra besti sprett-
hlaupari sem við höfum átt. Mér hefur í þessu spjalli mínu
einkum orðið tíðrætt um hlaupara gullaldarinnar þótt
afrekaskrár sýni og sanni hve góðir
seinni tíma hlauparar hafi verið.
Nýr Haukur Clausen: Sveinn
Elías Elíasson
Þegar rýnt er í þessar skrár sést líka
að í uppsiglingu er afreksmaður sem
minnir um margt á hinn 18 ára gamla
Hauk Clausen þegar hann skákaði
bestu spretthlaupurum Norðurlanda.
Þetta er Sveinn Elías Elíasson. Haukur hætti keppni
23 ára gamall en á okkar dögum geta spretthlauparar
haldið snerpu sinni fram yfir þrítugt. Nafn Sveins Elías
ar hljómar sem ómþýð tónlist í eyrum mínum, ekki aðeins
vegna þeirra miklu vona sem má binda við gaselludreng
næstu ára, heldur einnig vegna þess að fyrir tveimur árum
varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að fá skóna hans lánaða
þegar ég brá á leik og tók 100 metra keppnissprett á Laug-
ardalsvellinum eftir 40 ára keppnishlé. sky,
Afreksmenn
Brusselfarar 150 á leið til Kaupmannahafnar. Fræknasti hópur íþróttamanna sem Ísland hefur átt.
Oddur Sigurðsson setti
1984 met í 400 metra
hlaupi sem enn stendur,
45,36. Það var jafnframt
Norðurlandamet sem stóð
í meira en tuttugu ár!