Ský - 01.02.2008, Qupperneq 60
0 ský | 1. tbl. 2008
KEA er sterkt félag en fæst nú við allt aðra hluti en áður, fyrrum stóð félagið í umsvifamiklum atvinnurekstri en nú er hér stunduð fjárfestingastarfsemi líkt og hjá öðrum
fjárfestingafélögum,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri
KEA. „Starfsemin eins og hún birtist á liðinni öld á lítið skylt við
það sem við fáumst við um þessar mundir.“
Halldór segir félagið hafa mikla burði til þátttöku í verkefnum
af ýmsu tagi og menn séu ávallt að skima eftir nýjum spennandi
tækifærum varðandi fjárfestingar. „Við horfum fyrst og fremst
til þess að fjárfesta í arðsömum rekstri, okkar markmið er að
ávaxta eignir félagsins og ráðstafa arði félagsins til áframhaldandi
uppbyggingar þess og til samfélagsins sem félagið starfar í,“
segir Halldór en félagið á eignarhluti í fjölda fyrirtækja á
Eyjafjarðarsvæðinu og víðar um land og hefur að auki teygt
anga sína út fyrir landsteinana. „Til að uppfylla það markmið
félagsins að ávaxta eignir þess getum við ekki einungis horft til
nærsvæðisins, við verðum að líta út fyrir það, en vissulega eru
rætur okkar hér og stór hluti núverandi fjárfestinga okkar er
einnig hér á svæðinu.“
Úr atvinnurekstri - í fjárfestingar
Saga KEA er löng, hún nær til ársins 1886 og er KEA eitt
elsta fyrirtæki landsins. Atvinnu- og viðskiptalíf landsmanna
gjörbreyttist á síðasta áratug liðinnar aldar og þær breytingar
hittu KEA fyrir eins og önnur fyrirtæki. Nýjar áherslur voru
lagðar á ýmsum sviðum og leitast við að laga fyrirtækið að þeim
breytingum. Ráðist var í viðamikla fyrirtækjavæðingu einstakra
rekstrarsviða félagsins en eftir aldamótin síðustu voru gerðar
grundvallarbreytingar á skipulagi og stefnu félagsins. Félag sem
áður hafði með höndum umfangsmikinn og fjölbreyttan rekstur
hefur nú þróast í að vera fjárfestingarfélag. Þegar mest var unnu
um 1200 manns hjá KEA og félagið var eitt það stærsta á Íslandi.
Í dag starfa fimm manns hjá KEA. „Fjárfestingar eru aðalstarfemi
okkar nú,“ segir Halldór, „en félagið leggur líka metnað í að styðja
við ýmis samfélagsleg verkefni hér á svæðinu og við finnum fyrir
mikilli velvild íbúanna í okkar garð. Það er ekkert fyrirtæki á þessu
svæði sem veitir jafnmiklum fjármunum til styrktar einstaklingum,
menntastofnunum, félagasamtökum og verkefnum eins og KEA
og ég er ákaflega stoltur af því.“
Fjölbreytt eignasafn - áhættudreifing
KEA hefur yfir að ráða tæpum sex milljörðum króna í eigin
fé, „sem er býsna mikið á mælikvarða okkar hér fyrir norðan
og sem stendur er félagið lítið skuldsett,“ segir Halldór. Við
skiptum áherslum í okkar starfsemi upp í fjóra flokka en þeir
eru einkafjárfestingar (private equity), nýsköpunarfjárfestingar
(venture), innviðafjárfestingar (infrastructure) og stöðutaka á
verðbréfamörkuðum. Eignasafnið er fjölbreytt og það dreifir
Texti: Margrét Þóra Þórsdóttir • Mynd: Kristján Kristjánsson
Flestir hafa eflaust bragðað KEA-skyr og nartað í KEA-hangikjöt. Margir líka gist á
KEA-Hóteli á Akureyri. En ekki er víst að allir átti sig á að KEA tengist ekki lengur á
nokkurn hátt skyri, hangikjöti eða hóteli. Það er liðin tíð. Starfsemin hefur á liðnum
árum tekið miklum breytingum og nú er KEA fyrst og fremst fjárfestingafélag.
Fjárhagslega er það sterkt, eigið fé er tæpir 6 milljarðar króna. Markmið félagsins er
að fjárfesta í áhugaverðum fyrirtækjum með hagnað að leiðarljósi, en arðurinn rennur
síðan að stórum hluta til góðra málefna á félagssvæðinu.
Hið „nýja“ KeA
er fjárfestingafélag
... þar sem arðurinn rennur til eigendanna eftir ýmsum leiðum