Ský - 01.02.2008, Qupperneq 64

Ský - 01.02.2008, Qupperneq 64
4 ský | 1. tbl. 2008 og konu hans Sharon Tate sem var komin að því að eiga barn. Polanski var að heiman en hópurinn myrti Tate og fjóra aðra. Eina tengingin virðist vera sú að Manson hafði áður komið í húsið þegar það var leigt öðru fólki. Daginn eftir var látið til skara skríða gegn forstjóra kjörbúðar og konu hans. Sem fyrr virðist val fórnarlambanna hafa verið tilviljun. Manson hafði komið í húsið við hliðina. Fromme var ekki í hópi þeirra sem Manson sendi til morðanna. Hún var þó yfirheyrð en var ekki samvinnuþýð og var ein í hópi fleiri ungmenna, einkum stúlkna, sem stöðugt héldu fram sakleysi Mansons. Hópurinn mætti við réttarhöldin, klæddist kuflum og markaði krossa og sólkross á enni sér líkt og Manson gerði sjálfur. Næstu árin hélt Fromme hópinn með öðrum Manson- áhangendum. Hjón sem slógust í hópinn fundust látin með dags millibili en það mál virðist ekki hafa verið upplýst. Að morgni 5. september 1975 kom hún, klædd í rauðan kyrtil og með byssu innan klæða, í garð í Sacramento í Kaliforníu þar sem hún bjó. Ford forseti kom þar sama dag og Fromme sagði síðar að hún hefði ætlað að reyna að ná tali af forsetanum til að ræða friðun trjáa. Í staðinn dró hún upp byssu sem hún beindi að forsetanum en áður en hún náði að skjóta var byssan slegin úr hendi hennar. Hún hrópaði að hún hefði ekki skotið, byssan var ekki stillt til að skjóta og tilgangurinn allur óljós. Fromme neitaði að vinna með verjendum sínum og var dæmd í lífstíðarfangelsi. Hún hefur ekki nýtt sér rétt sem hún hefur átt síðan 1985 til að fá mál sitt tekið upp. Hún flúði úr fangelsinu 1987, ætlaði að leita Manson uppi því hún hafði heyrt að hann væri veikur en það tókst ekki og hún var tekin föst eftir tvo daga. Fromme dvelur nú á lokaðri sjúkrastofnun. Manson situr enn í fangelsi og mál hans má ekki taka upp fyrr en 2012. Annar „byltingarsinni“ Sarah Jane Moore (1930) var hjúkrunarkona og endurskoðandi og hafði átt fimm menn þegar hún upptendraðist af byltingar- hugmyndum undir fertugt. Það var sagan af Patty Hearst, milljónaerfingjanum sem sjálfskipaður „frelsisher“ hafði rænt 19 ára gamalli í febrúar 1974 til að krefjast lausnargjalds fyrir. Hearst varð fræg fyrir að ganga til liðs við ræningjana – klassískt dæmi um hvernig gíslar geta samsamað sig ræningjum sínum. Myndin af henni í herbúningi með vélbyssu er ein af frægustu myndum áttunda áratugarins. Til að mæta kröfum ræninganna stóð faðir Patty fyrir matar- gjöfum til fátækra í Kaliforníu og Moore starfaði á vegum samtakanna sem dreifðu matnum. Moore var þó líka tengd FBI sem hafði kannað að henni væri treystandi. Skömmu fyrir tilræðið við Ford hafði hún verið tekin með ólöglega byssu sem var gerð upptæk en ekkert frekar aðhafst. Moore kom að Ford utan við St. Francis hótelið í San Francisco. Maður sem sá hana draga upp byssuna sló til hennar, skot hljóp úr byssunni og særði vegfaranda en kom ekki nálægt forsetanum. Hún var dæmd í lífstíðarfangelsi en var látin laus um síðustu áramót. Hún hefur iðrast opinberlega og sagt að byltingarórar hafi villt um fyrir sér. Leikarinn sem varð forseti Repúblikaninn Reagan var forseti Bandaríkjanna á árunum 1981- 1989 og hluti af arfleifð hans, fyrir utan efnahagsbreytingar, er endalok kalda stríðsins. Fundur Reagans og Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna, í Höfða í Reykjavík í október 1986 var liður í því ferli. Reagan lét af embætti í janúar 1989 en um haustið sama ár hrundi Berlínarmúrinn. Reagan var af millistéttarfólki kominn og æska hans markaðist af trú og frjálslyndri afstöðu til blökkumanna sem var ekki algengt á þeim tíma. Móðir hans var glaðlynd og bjartsýn, en þeir eðlisþættir þóttu síðar einkenna soninn. Hann tók háskólapróf í hagfræði og félagsfræði en leiðin lá í skemmtanaiðnaðinn. Sarah Moore, miðaldra kona með morðhugmyndir. Manson aðdáandinn Lynette Fromme leidd á brott. Morðtilræði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.