Ský - 01.02.2008, Síða 70
Will Smith er margt til lista lagt og hefur náð langt bæði í tónlist og á hvíta tjaldinu. Hann er í dag ein stærsta og
vinsælasta kvikmyndastjarna heims, en lætur
frægðina ekki vefjast fyrir sér, er mörgum til
fyrirmyndar hvað varðar líferni og kann best við
sig heima hjá eiginkonu og börnum. Hann segir
fjölskylduna vera það dýrmætasta sem hann á.
Það er ekki margt í lífi Smiths sem bendir til
þess að ungur að árum hafi hann verið í fremstu
röð rappara, þar sem fjölskyldulíf er ekki hátt
metið. Frá upphafsárum hans í rappinu hefur
ferill hans, fyrst í sjónvarpi, aftur í tónlist og
síðan í kvikmyndum verið sigurganga, sem náði
hæstu hæðum í nýjustu kvikmynd hans, I Am a
Legend. Þar er hann nánast einn á ferð í New York
framtíðarinnar, þegar vírus hefur eytt mestöllu
lífi á jörðinni. Fór Smith létt með að halda
áhorfendum við efnið en satt best að segja missti
myndin nokkuð af styrkleika sínum þegar aðrar
persónur birtust í lokin.
Will Smith er jafnvígur á öll hlutverk. Hann
heldur uppi kvikmynd hvort sem um rómantíska
gamanmynd er að ræða (Hitch), fjölskyldumynd
(Pursuit of Happyness) eða vísindaskáldsögu
(I Robot). Leikur hans er áreynslulaus og í
framtíðinni eigum við örugglega eftir að sjá hann
í stórum dramatískum hlutverkum, en ekki hefur
verið mikið um slíkt á ferli hans. Þau sem næst
komast dramatíkinni eru hlutverk Muhameds Ali
í Ali (2001) og í kvikmynd Roberts Redford, The
Legend of Bagger Vance, (2000). Að langmestu
leyti hefur hann leikið í rándýrum hasarmyndum,
sem allar hafa fengið mikla aðsókn, má þar nefna
Independence Day, Bad Boys, I og II, Men in Black,
I og II, Enemy of the State, I Robot, I am Legend
og Wild, Wild West, en Smith hefur sagt að aldrei
hafi hann séð eins mikið eftir að hafa leikið í
kvikmynd eins og þeirri mynd: „Þegar Wild Wild
West fór í efsta sæti vinsældalistans, tók inn 52
milljónir dollara fyrstu helgina, dauðskammaðist
ég mín, ég vissi sem var að myndin var mjög
léleg.“
Rapparinn sem sló í gegn í sjónvarpi og kvikmyndum:
Will Smith
Texti: Hilmar Karlsson