Ský - 01.02.2008, Page 75

Ský - 01.02.2008, Page 75
Twin Otter eru sterkir „vinnuhestar“ sem hafa fyrir löngu sannað gildi sitt í ýmsum verkefnum, oft við erfiðustu skilyrði. Hægt er að búa vélarnar skíðum til lendingar á snjó og jöklum. Fokker 50 er nýjasta gerð tegundar sem áratugareynsla er fengin af hér á landi. Fokker 50 vélarnar eru rúmgóðar, hraðfleygar og sérstaklega hljóðlátar og henta einkar vel til farþegaflutninga. Dash 8 flugvélin hefur kosti sem óþekktir eru hér á landi. Hún getur farið fullhlaðin af 800 m braut og þolir meiri hliðarvind en sambæri- legar flugvélar. Hægt er að breyta vélinni í fraktvél sem ber 4200 kg. Flugvélakostur Flugfélags Íslands Ekkert er mikið og ekkert er lítið án samanburðar við annað Gott næði og vinnufriður eru mikilvægar forsendur fyrir því að fundur takist vel og skili þeim árangri sem stefnt er að. Á áfangastöðum Flugfélags Íslands úti á landi er hvarvetna að finna fyrsta flokks funda- og gistiaðstöðu og mun meira næði og minni truflun en á starfsstöðvum fyrirtækja. Í samvinnu við hótel á þessum stöðum bjóðum við hagstæðar pakkaferðir, hvort sem menn vilja fljúga á fund að morgni og aftur heim að kvöldi eða ætlunin er að gista eina nótt eða fleiri. Við bjóðum fyrirtækjum að skipuleggja stuttar funda- og ráðstefnuferðir. Við bjóðum fundarsali vel búna tækjum, veitingaþjónustu og annað sem fyrirtækið þarf til að geta haldið árangursríkan fund í friði frá amstri dagsins. Sparið tíma og fyrirhöfn. Látið fyrirtækja- þjónustu Flugfélags Íslands sjá um skipu- lagninguna og njótið þess að halda góðan fund í friði. Flug er ábyrgt fyrir 2% af útblæstri CO2 á heimsvísu. Hlutur allra samgöngutækja í losun koltvísýrings á heimsvísu er 20% og þar af er hlutur vegasamgangna 80% en hlutur flugsins aðeins 12%. Skv. upplýsingum frá European Regions Airline Asscociation er losun koltvísýrings vegna raforkuframleiðslu til lýsingar þrisvar sinnum meiri á heimsvísu en losun koltvísýrings vegna flugsamgangna. Í löndum Evrópubandalagsins er hlutur flugsamgangna í losun koltvísýrings aðeins 1,5%. Samsvarandi hlutur vegasamgangna er 52% og til orkunotkunar á heimilum og í fyrirtækjum má rekja 39% af losun koltvísýrings í löndum Evrópubandalagsins. Þar sem Íslendingar eru svo lánsamir að framleiða nær alla raforku, sem þeir nota, í vatnsaflsvirkjunum og þeir kynda nánast allt húsnæði með jarðvarmaorku og raforku er hlutur flugsamgangna innanlands í heildarlosun koltvísýrings á Íslandi að sjálfsögðu eilítið meiri en samsvarandi hlutur flugsamgangna í Evrópubandalaginu. Samt sem áður leikur enginn vafi á að losun koltvísýrings á hvern einstakling er miklum mun minni þegar flogið er milli staða hér innanlands en þegar sama vegalengd er ekin. Fundafriður - Flogið og fundað Afköst, árangur, vellíðan www.flugfelag.is Svona bókar þú á flugfelag.is 1. Veldu áfangastað og brottfarardag. 2. Veldu fargjald. 3. Þú færð upplýsingar um bókunina og skilmála. 4. Sláðu inn nafn farþega, greiðslumáta og símanúmer. 5. Þú færð endanlegt, prentvænt yfirlit og bókunarnúmer. Tæknilegar upplýsingar: Áhöfn: 2 Farþegafjöldi: 19 Flughæð: 13.000 fet Flughraði: 290 km/klst. Flugdrægi: 1.200 km Flugtaksþyngd: 5.670 kg Hreyflar: 2xPWPT6A-27 hverfihreyflar, 578 hö hvor Farangursrými: 3,5 m3 (vörudyr 1,2x1,4 m) Getur lent á mjög stuttum og grófum flugbrautum og á skíðum. Tæknilegar upplýsingar: Jafnþrýstiklefi Áhöfn: 3 Farþegafjöldi: 50 Flughæð: 25.000 fet Flughraði: 490 km/klst. Flugdrægi: 2.100 km Flugtaksþyngd: 20.820 kg Hreyflar: 2xPW 125B hverfihreyflar, 2.500 hö hvor Farangursrými: 7,4 m3 í vöruhólfum og 3 fyrir handfarangur Tæknilegar upplýsingar: Jafnþrýstiklefi Áhöfn: 3 Farþegafjöldi: 37 Flughæð: 25000 ft Flughraði: 490 km/klst Flugdragi: 1800 km Flugtaksþyngd: 16.500 kg Hreyflar: 2 x PW 121 A Hverfihreyflar, 2150 hö hvor Farangursrými: 8,5 m3 í vöruhólfi og 2 fyrir handfarangur Alltaf hagstæðasta verðið Staðreyndir um umhverfisáhrif af völdum flugsamgangna Upplýsingar í síma 570 3075 eða á hopadeild@flugfelag.is

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.