Ský - 01.02.2008, Qupperneq 75
Twin Otter eru sterkir „vinnuhestar“
sem hafa fyrir löngu sannað gildi sitt
í ýmsum verkefnum, oft við
erfiðustu skilyrði. Hægt er að búa
vélarnar skíðum til lendingar á snjó
og jöklum.
Fokker 50 er nýjasta gerð tegundar
sem áratugareynsla er fengin af hér
á landi. Fokker 50 vélarnar eru
rúmgóðar, hraðfleygar og
sérstaklega hljóðlátar og henta
einkar vel til farþegaflutninga.
Dash 8 flugvélin hefur kosti sem
óþekktir eru hér á landi. Hún getur
farið fullhlaðin af 800 m braut og
þolir meiri hliðarvind en sambæri-
legar flugvélar. Hægt er að breyta
vélinni í fraktvél sem ber 4200 kg.
Flugvélakostur Flugfélags Íslands
Ekkert er mikið
og ekkert er lítið
án samanburðar við annað
Gott næði og vinnufriður eru mikilvægar
forsendur fyrir því að fundur takist vel og skili
þeim árangri sem stefnt er að. Á áfangastöðum
Flugfélags Íslands úti á landi er hvarvetna að
finna fyrsta flokks funda- og gistiaðstöðu og mun
meira næði og minni truflun en á starfsstöðvum
fyrirtækja.
Í samvinnu við hótel á þessum stöðum bjóðum
við hagstæðar pakkaferðir, hvort sem menn vilja
fljúga á fund að morgni og aftur heim að kvöldi
eða ætlunin er að gista eina nótt eða fleiri.
Við bjóðum fyrirtækjum að skipuleggja stuttar
funda- og ráðstefnuferðir. Við bjóðum fundarsali
vel búna tækjum, veitingaþjónustu
og annað sem fyrirtækið þarf til að geta haldið
árangursríkan fund í friði frá amstri dagsins.
Sparið tíma og fyrirhöfn. Látið fyrirtækja-
þjónustu Flugfélags Íslands sjá um skipu-
lagninguna og njótið þess að halda góðan
fund í friði.
Flug er ábyrgt fyrir 2% af útblæstri CO2 á heimsvísu. Hlutur allra samgöngutækja í losun
koltvísýrings á heimsvísu er 20% og þar af er hlutur vegasamgangna 80% en hlutur
flugsins aðeins 12%.
Skv. upplýsingum frá European Regions Airline Asscociation er losun koltvísýrings vegna
raforkuframleiðslu til lýsingar þrisvar sinnum meiri á heimsvísu en losun koltvísýrings
vegna flugsamgangna.
Í löndum Evrópubandalagsins er hlutur flugsamgangna í losun koltvísýrings aðeins 1,5%.
Samsvarandi hlutur vegasamgangna er 52% og til orkunotkunar á heimilum og í
fyrirtækjum má rekja 39% af losun koltvísýrings í löndum Evrópubandalagsins.
Þar sem Íslendingar eru svo lánsamir að framleiða nær alla raforku, sem þeir nota, í
vatnsaflsvirkjunum og þeir kynda nánast allt húsnæði með jarðvarmaorku og raforku er
hlutur flugsamgangna innanlands í heildarlosun koltvísýrings á Íslandi að sjálfsögðu eilítið
meiri en samsvarandi hlutur flugsamgangna í Evrópubandalaginu. Samt sem áður leikur
enginn vafi á að losun koltvísýrings á hvern einstakling er miklum mun minni þegar flogið
er milli staða hér innanlands en þegar sama vegalengd er ekin.
Fundafriður - Flogið og fundað Afköst, árangur, vellíðan
www.flugfelag.is
Svona bókar þú á flugfelag.is
1. Veldu áfangastað og brottfarardag.
2. Veldu fargjald.
3. Þú færð upplýsingar um bókunina og skilmála.
4. Sláðu inn nafn farþega, greiðslumáta og símanúmer.
5. Þú færð endanlegt, prentvænt yfirlit og bókunarnúmer.
Tæknilegar upplýsingar:
Áhöfn: 2
Farþegafjöldi: 19
Flughæð: 13.000 fet
Flughraði: 290 km/klst.
Flugdrægi: 1.200 km
Flugtaksþyngd: 5.670 kg
Hreyflar: 2xPWPT6A-27 hverfihreyflar,
578 hö hvor
Farangursrými: 3,5 m3
(vörudyr 1,2x1,4 m)
Getur lent á mjög stuttum og grófum
flugbrautum og á skíðum.
Tæknilegar upplýsingar:
Jafnþrýstiklefi
Áhöfn: 3
Farþegafjöldi: 50
Flughæð: 25.000 fet
Flughraði: 490 km/klst.
Flugdrægi: 2.100 km
Flugtaksþyngd: 20.820 kg
Hreyflar: 2xPW 125B hverfihreyflar,
2.500 hö hvor
Farangursrými: 7,4 m3 í vöruhólfum
og 3 fyrir handfarangur
Tæknilegar upplýsingar:
Jafnþrýstiklefi
Áhöfn: 3
Farþegafjöldi: 37
Flughæð: 25000 ft
Flughraði: 490 km/klst
Flugdragi: 1800 km
Flugtaksþyngd: 16.500 kg
Hreyflar: 2 x PW 121 A Hverfihreyflar,
2150 hö hvor
Farangursrými: 8,5 m3 í vöruhólfi og 2
fyrir handfarangur
Alltaf hagstæðasta verðið
Staðreyndir um umhverfisáhrif af völdum flugsamgangna
Upplýsingar í síma 570 3075 eða á hopadeild@flugfelag.is