Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 28

Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 28
síðan þjóð varð til.“ Mikil er hamingja þín, ísland, og þrefalt rneiri hamingja þín, Reykja- vík. * Reykjavíkur-geisli Pýramidans hefst, eins og fyrr getur, rétt hjá suðaustur sökkli Pýra- midans mikla og sker lóðréttan flöt ganga- kerfis Pýramidans á móts við þar, sem það táknar 1. janúar 1933 og er það í lága gang- inurn, sem liggur að konungssalnum. Þar eð Benjamín-Island er guðlega valinn ljós- beri ísraels, opinberar það táknmál Pýramid- ans, sem að ísrael lýtur, að það tekur að birta yfir eftir 1933. Reykjavíkur-geislinn sker flöt tímarita Pýramidans beint undir tindsteini hans. Tindsteinn þessi eða höfuð táknar Krist, „Sól réttlætisins“. Þau atriði, sem lúta að gangi sólar vorrar, eru einnig birt í vísindalegri opinberun Pýrajnidans mikla, er það gert með lögun og stærð tind- steinsins og er slíkt athyglisvert. Á andlegu táknmáli Pýramidans táknar því höfuð eða „tindsteinn“ hans hina rniklu uppsprettu andlegs lífs, Krist, sem sagði: „Ég er ljós heimsins", en í vísindalegri opinberun Pýra- midans táknar tindsteinninn sólina, hina miklu uppsprettu náttúrlegs ljóss á jörðu vorri. Reykjavíkur-geislinn kemur beint und- ir tindsteininn nákvæmlega á sama stað og hann snertir flöt tínraritans og sést af því, að hinn guðlegi tilgangur með íslandi átti að fara að opinberast mönnum 1. janúar 1933 — nákvæmlega á þeim tíma, sem til- greindur er með tímaritanum. Dagsetning þessi er í þeim hluta gangakerfisins, er á við ísrael, en hú'n er í miðjum gangi lágum og þröngum og ber það þess vott, að fyrsta hugmyndin urn þessa opinberun varðandi ísland rnundi ekki birtast sem skyndileiftur samstundis, heldur yrði það öfugt. Á fyrsta stigi málsins myndi mikilvægi þess ekki verða lýðum ljóst og héldi áfram að vera þoku hulið um það tímabil, sem táknað er með því, sem eftir er af ganginum. Það ber að athuga, að dagsetningin 1. janúar 1933, sein ákveðin er með því, hvar Reykjavíkur-geisl- inn nemur við skurðarflöt Pýramidans, er nákvæmlega einum almanaksmánuði á und- an dagsetningunni, sem mörkuð er með framlengingu brezka möndulsins að þver- skurði eða fleti tímarita Pýramidans (þ. e. 1. febrúar 1933). Er það eins og vænta mátti, er þess er gætt, að Benjamín (ísland) er for- ustumaður og ljósberi ísraels (Bretlands) og verður fyrstur til þess að þekkja, hver hann er og verður í fararbroddi inn í nýju öldina, sem nú fer að roða fjöllin. # Litla, þrönga ganginum lýkur þar, sem tímariti Pýramidans táknar 17. sept. 1936. Er þá farið inn á svið þekkingarinnar — í konungssalinn. Þar er steinkistan, sem er jafnstór að innanmáli eins og sáttmálsörkin var, en frá henni stafaði dýrðarljóma Drott- ins (shekina ljósinu). Skýringin á þessu er sú, að það sem dauflega var skynjað 1933, átti að verða gerþekkt eftir 17. september 1936, og opinberað og gert íslenzku þjóðinni kunn- ugt, hver væri Benjamín, ljósberi ísraels. Og nákvæmlega þetta gerðist, og tímaspá Pýra- rnidans hefir rætzt á tilsettri stundu. í árs- byrjun 1933 var ætterni íslenzku þjóðarinn- ar fyrst rakið greinilega, stig af stigi frá ísrael í Palestínu, svo að engan lið eða lrlekk vantaði. Ættrakning þessi var öll í „Israel- Britainsem kom út árið eftir. En það var ekki fyrr en undir árslok 1936 að ljóst varð, hve þýðingarmikið þetta er og að Benjamín nútímans er búsettur á íslandi. En þá var eins og geislaflóði væri veitt á viðfangsefnið og það opnaðist eins og fagurt blóm, sem breiðir krónu sína rnóti geislum upprenn- andi sólar. Blasti nú við oss að ísland var Benjamín, og örlögin höfðu ætlað því að vera djósberi fyrir þjóðasamstæðu ísraels, og vér sáum hið glæsilega hlutverk, sem því var 22 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.