Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 21

Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 21
í frétt frá 4. janúar, þar sem skýrt er frá ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að senda landgöngulið til Miðjarðarhafs, segir: „í fregn frá London í gær var svo frá skýrt, að almennt væri litið á þessa lið- flutninga sem m/'ög aívarJega aðvörun Bandarík/anna til nágrannaríkja Grikk- lands við því að viðurkenna hina ný- mynduðu uppreisnamiannastjórn á Grikklandi eða veita henni nokkurn stuðning. • Varaði og Lovett, aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Balkan- ríkin við þessu strax eftir að uppreisnar- mannastjórnin var mynduð.----------Hef- ir þótt augljóst, síðan þeir mynduðu stjórn gegn hinni löglegu stjóm Grikk- lands, að áframhald á slíkum stuðningi gæti haft hinar alvarlegustu afJeiðingar.“ (Lbr. hér.) En fáum dögurn eftir að hin nýja upp- reisnarmannastjórn var sett á stofn fyrir til- stilli Rússa og leppríkja þeirra gerðist ann- ar atburður, sem ekki talar síður skýrt því máli, að Rússar hcrða nú rnjög sóknina til Grikklands. Sá atburður er valdaafsal Mika- els Rúmeníukonungs. Blað Rússa hérlendis segir svo frá þessari fregn 31. desember 1947: „Miekael Rúmeníukonungur lagði nið- ur völd í gær. Hefir Rúmenía verið lýst lýðveldi og ríkisráð kosið af þinginu til að fara með æðstu völ.d landsins, þar til forseti hefir verið kosinn. Stjóm Groza liefir beðizt lausnar, þingið var kvatt saman í gær og sam- þykkti það valdaafsal konungsins og af- réð að gera landið að lýðveldi. í yfirlýs- ingu konungsins, er lesin var í rúmenska útvarpið síðdegis í gær, segir m. a. að „Jconungsst/orn samræmist ekki Jengur þörfum rúmenska ríkisins og sé aívarJeg tálmun á vegi þróunarínnar.“ Það var vitað, að hermálaráðherra Rúm- eníu hafði verið austur í Moskva, og það var þrem dögurn eftir að hann kom heim, sem konungurinn var neyddur til að segja af sér. Má af því sjá, að enn er það Moskva, sem á bak við stendur. En liver var orsökin fyrir því, að Mikael konungur lét af völdum? Hann er nú kom- inn til Sviss, en liefir neitað að láta uppi ástæðuna fyrir þvíp að hann lét af völdum. Það er aðeins vitað. að hann var neyddur til þess. En smátt og smátt skýrist þetta einnig, og menn er nú þegar farið að renna grun í hina sönnu ástæðu. Hún er nú talin vera sú, að konungurinn fékkst ekki til að undirrita hernaðarbandlag það, sem Rússar hafa verið að koma á fót að undanförnu, og fyrst og fremst er stefnt gegn Grikklandi og þeirn þjóðum. sem nú styrkja hina lög- legu stjórn Grikklands, Bretlandi og Banda- ríkjunum. — Rúmeníukonungur hlaut að neita allri þátttöku í slíku bandalagi, og þess vegna varð hann að víkja — að boði Rússa. Um allt þetta og ótalmargt fleira af svip- uðu tagi, sem nú er að gerast í löndunum á Balkanskaga, veit utanríkisþjónusta Banda- ríkjanna betur en flestir aðrir. Vopnuð skyndi-innrás í Grikkland, studd af grann- ríkjum þess, vofir nú yfir og aðeins er beðið hentugs tækifæris. Það eru Rússar, sem á bak við standa. Þeir eru að brjóta sér leið suður að Miðjarðarliafi. Ekki er ólíklegt, að þeir hyggi á heljarmikla tangarsókn í fyrstu atrennu, með því að beina sameinuðum her- afla Balkanþjóðanna til Grikklands og Ítalíu, en Soviethemum suður yfir Tyrkland og Persíu og allt til Egyptalands. Þeir einu, sem nokkurt viðnám gátu veitt Rússum við botn Miðjarðarhafsins, voru Bret- ar, meðan þeir höfðu öflugar setuliðsstöðvar þar víðs vegar. Nú eru þeir óðum að flytja sig þaðan. Þeir liafa þegar farið frá íran, DAGRENN I NG 25

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.