Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 11

Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 11
fræddur, að hann mun geta byrjað að upp- lýsa allar aðrar þjóðir ísraels (Brezka heinrs- veklið, Bandaríkin, Norðurlönd, Holland o. s. frv.) um skyldleika þeirra, hlutverk og hinn mikla heiður að vera af Guði kjörnar til að framkvæma hið dýrðlega hlutverk, að hefja á æðra stig allar þjóðir jarðarinnar undir stjórn hins upprisna Krists, sem tákn- aður er með hinu opna skríni konungssalar- ins. — » Þessi vitneskja, sem fengin er frá tíma- mæli (chronograph) Pýramidans, er í ná- kvæmu samræmi við tímatalsspádóma Biblí- unnar, því að eins og sýnt hefir verið fram á, eru hinar miklu „sjö tíðir“ endanlega liðnar á árinu 1941, að því er til Benjamíns tekur, og þá mun Benjamín koma fyrir fullt og allt fram úr myrkri aldanna og taka við hinu ákvarðaða hlutverki sínu sem Ijósberi fyrir hinum engilsaxnesku og norrænu þjóð- um, og sem boðberi nýrri og betri tíma, er korna munu, að hinurn mikla „heimsbruna“ loknum. Eins og kunnugt er, táknar lengd skrín- isins sjö ára tímabil, sem byrjar á tíma- bilinu 26. júní til 21. des. 1941 og endar á tímabilinu 17. maí til 11. nóv. 1948. Þetta bendir á, að eftir að ísland hefir náð að uppfræðast, mun hefjast uppfræðsla annarra ísraelsþjóða urn hin dásamlegu sérréttindi þeirra og arfleifð, og endar sá undirbún- ingstimi árið 1948. Bilið frá þeim enda skrínisins, sem fjær er innganginum og að suðurveggnum á konungssalnum, táknar, samkvæmt mælikvarðanum, sem þarna á við, tímabil, sem er um það bil 5 ár, eða nær yfir tímann frá 11. nóv. 1948 til 20. ágúst 1953. Eins og það mun sannast, að tíma- markið 1953 táknar upphafið á hinu mikla verki, sem Guð hefir fyrirhugað hinum sam- einuðu ísraelsþjóðum að vinna í sameiningu, en það er að leiða bJessun yfir alíar þjóðir heimsins, þá mun það og ljóst verða, að á 5 ára tímabilinu frá 1948—1953 mun fara fram endurskipan heimsmálefnanna undir forustu hins upplýsta ísraels, því að allar ísraelsþjóðirnar — þ. e. Brezka lieimsveldið, Bandaríkin, ísland, Noregur, Svíþjóð, Dan- mörk, Holland, — og Finnland og Estland, sem að nokkrum hluta eru ísraelsþjóðir, — munu (á þeim tíma) ganga saman í voldugt, samstillt ríkjabandalag frjálsra þjóða og verða þannig að voldugri og mikilli (en blandaðri) „þjóð“, sem Guð ætlar það lilutverk að leiða blessun yfir allt mannkyn. Þannig mun 41 árs tímabilið frá 21. ágúst 1953 til 21. sept- ember 1994 verða undirbúningstími þúsund- áraríkisins, og þá munu almennt liefjast þær framkvæmdir undir stjórn ísraelsþjóð- anna, sem leiddar eru af Kristi, og þær fram- kvæmdir munu ná liámarki við komu þús- undáraríkisins árið 1994. Árið 1933—34 er miðpunktur eða mið- dagsetning í hinum hundrað og tuttugu ára langa Jokaþætti þessa tímabils. Árin 1873/ 74 til 1993/94 eru undirbúningstími þúsund- áraríkisins. Þessa tímabils var minnst lijá hinum fornu Egyptum með hátíðaliöldum, sem nefnd voru hátíð endalokanna (Festival of the End) eða liátíð endurnýunarinnar (Festival of the Renewal). Þá var lialdin hin svonefnda Sep-tep-sed-hátíð, og var hún 120. livert ár (stundum 121. livert ár vegna innskotsára). Þessu Sep-tep-sed tímabili var skipt í 4 undirtímabil (Sed-periods), sem hvert var 30 ár. Það er athyglisvert, að ef yfirstandandi 120 ára tímabili (þ. e. tíma- bilinu frá 1873/74 til 1993/94) er skipt í samræmi við undirtímabil liins forna tíma- tals, kemur í ljós, að þau ártöl, sem út koma, falla saman við mest áberandi ártöl í endur- reisnarsögu íslands allt til þessa (1938). — Byrjunarártöl þessa 120 ára tímabils er 1873/ 1874 (þ. e. 120 árum fyrir 1993/1994), en það ártal er einmitt merkilegast í sögu ís- lands fyrir liina stjórnarfarslegu endurreisn, DAGRHNNING 5

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.