Dagrenning - 01.10.1954, Qupperneq 3
BAGRENNING
5. TOLUBLAÐ
9. ÁRGANGUR
REYKJAVÍK
OKTÓBER 1954
Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavik. Sími 1196
Vér nútímamenn vöðum í villu um marga hluti, þrátt fyrir hina miklu
þekkingu vorrar svokölluðu „upplýstu“ aldar. Vér höfum hafnað mörg-
um þeim kenningum, sem forfeður vorir grundvölluðu lífsskoðun sína
á, lífsskoðun, sem gerði þá sterka og þrautseiga í harðri og langri baráttu
við óblíða náttúru og ill stjómarvöld. Ein þessara grundvallarkenninga
forfeðra vorra var sú, að Kristur hefði verið Guðs sonur, kominn til jarð-
arinnar með yfirnáttúrlegum og óskiljanlegum hætti til þess að inna hér af
hendi mikilsverðasta hlutverkið, sem nokkurri lifandi veru hafði nokkm
sinni verið á hendur falið. Síðasta mannsaldurinn — raunar síðustu hundr-
að árin eða lengur hefur hin „vísindalega“ guðfræði verið að reyna að
leiða rök að því, að frásagnir Biblíunnar um tilkomu Jesú frá Nazaret væm
rangar eða villandi. Smátt og smátt hefur það áunnist, að gera þá skoðun
almenna, að Jesú Kristur hafi aðeins verið maður, getinn og fæddur að
mannlegum hætti. Hann hafi að vísu verið gáfaður og góður maður, líkt
og ýmsir aðrir, sem lifðu á undan honum og á eftir honum, en að hann hafi
verið Guð eða Guðs-sonur það sé alveg rangt, enda ósamrýmanlegt heil-
brigðri skynsemi og „niðurstöðum nútíma vísinda“. En til þess að komast
að þessari niðurstöðu verður að hafna eða vefengja fjölmörg atriði í frá-
sögnum Nýja testamentisins. Jesús hélt því skýlaust fram við mörg tæki-
færi, að hann væri Guðs sonur og af Guði getinn.
Þegar Jesús var að útskýra fyrir Nikódemusi, hvemig maðurinn gæti
endurfæðzt og komist inn í konungsríki himnanna, ságði hann: „Því svo
elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem
á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“ (Jóh. 3:16). Til þess að
geta trúað á einhvem er fyrst og fremst nauðsynlegt að trúa því, að hann
sé sá, sem hann segist vera. Jesús hélt því fram við mörg tækifæri, að hann
væri Guð, og hver, sem neitar því, getur ekki verið kristinn maður.
Jesús sagði: „Ef þér trúið ekki að ég sé hann (E. Bibl.) þá munuð þér
deyja í syndum yðar“ (Jóh. 8:24). Orðið „hann“ er ekki í gríska textanum,
en í stað þess orðin „ég er“ (eins og í ísl. Bibl.) en það kallaði Guð sjálf-
an sig, þegar hann talaði við Móse úr logandi þyrnirunninum. Gyðingam-
ir, sem Jesús talaði við, vissu mætavel, að hann hafði notað Guðs-heit-
DAGRENN I NG 1