Dagrenning - 01.10.1954, Blaðsíða 29

Dagrenning - 01.10.1954, Blaðsíða 29
hleðslulög úr múrsteini eða sem nemur leiðréttingareinkenninu, 286 pýramída- þumlungum. Þetta leiðréttingarein- kenni er undramáttur hins upprisna Krists. Eins og hin ófullkomna og „rang- stæða“, ytri lögun Pýramídans, eins og smiðirnir fornu gengu frá honum, sýnir hið ófullkomna ástand heimsins og mannkynsins, sem er „rangstætt" gagn- vart Guði, þannig getur hagnýting þess afls, sem táknað er með leiðréttingarein- kenninu, rétt „skekkjuna" og komið hinum syndumspillta heimi á rétta braut, í fullkomið samræmi við hið ei- lífa, svo að hinn sanni vilji Guðs verði framkvæmdur á jörðu eins og á himni. Pýramídinn mikli opinberar þannig, að mátturinn, sem getur leiðrétt skekkj- una og komið mannkyninu í fullkomið samræmi við skapara sinn, er helgaður í Jesú Kristi, sem sagði eftir upprisuna: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.“ TINDSTEINNINN, SEM HAFNAÐ VAR, LAGÐUR TIL LAGS. Ein misfellan á ytra útliti Pýramíd- ans mikla, eins og hann var reistur, er sú, að það vantar á liann tindsteininn eða toppinn. Pýramída-táknfræðin kem- ur fram í Biblíunni miklu víðar en menn gera sér almennt grein fyrir. Þeg- ar Drottinn vor og lærisveinar hans þurftu að skýra mál sitt með myndum, tóku þeir þær venjulegast annaðhvort úr náttúrunni eða af hlutum, sem fólkið í Litlu-Asíu kannaðist vel við. Á lík- ingamáli er talað um Krist sjálfan sem „aðalhyrningarsteininn" eða „höfuð- steininn." Til þess að ganga úr skugga um, hvaðan þessar samlíkingar eru tekn- ar, verðum vér að kynna oss, hvaða bygg'- ingu eða tegund bygginga þessi lýsing kernur heim við. Það er a. m. k. áreiðan- legt, að hvorki í íbúðarhúsum, sam- kunduhúsum né sjálfu musterinu í Jerú- salem var nokkur sérstakur steinn, sem fullnægði þessum skilyrðum, því hvar er þar að finna þann stein, sem er hvort tveggja í senn, aðalhyrningarsteinn og höfuðsteinn eða tindsteinn? En pýramíd- arnir í Egyptalandi, sem er stutt frá, er sá byggingarstíll, sem nákvæmlega kem- ur heim við þessa skilgreiningu. Á pýra- mída koma öll fjögur horn byggingar- innar saman í einum steini í toppnum, og þannig er krýningarsteinninn í senn bæði „höfuðsteinn" og „aðalhyrningar- steinn“, þar sem hann er sá eini af öllum steinum mannvirkisins, sem er einn yfir hinum 4 hornum þess. En í líkingamáli Nýja testamentisins er ein setning, sem einskorðar myndina við vissan pýramída. Steinninn er einnig nefndur „steinninn, sem smiðirnir höfnuðu". Pýramídinn mikli liefur einn þá sérstöðu, að hyrn- ingarsteinninn var aldrei lagður tii lags — smiðirnir höfnuðu honum. Ennfrem- ur er Pýramídinn mikli við Gizeh eina mannvirkið, sem lýsing Biblíunnar kem- ur heirn við. Það er líka athyglisvert, að þessi sérstaki pýramídi er ekki aðeins stærstur og þekktastur, heldur er hann einnig næstur Palestínu og sá, sem fólk þar kannast bezt við. Eigi má heldur gleyma því, að Abraham, Jakob, Jósep og raunar allir tólf synir Jakobs, Móses og Kristur sjálfur svo og óteljandi þús- undir annarra Israelsmanna, sem ekki eru eins kunnir, höfðu allir séð Pýramíd- ann mikla í hans upphaflegu tign, en án „toppsteinsins", löngu áður en villi- mennska Araba hafði rænt hann hinni ytri fegurð. Tindsteinninn er sjálfur fullkominn DAGRENNING 27

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.