Dagrenning - 01.10.1954, Side 6
komulaginu, og ef t. v. hefur hann einn-
ig tekið upp samninga við Alþýðu-
flokkinn um að verða þátttakandi í
ríkisstjórn lians, ef sæmilega tækist um
frekari samninga við \7esturveldin.
Frönsku stjórnmálaflokkarnir vildu
fæstir beinlínis hafna Lundúnasam-
komulaginu, heldur gera á því breyt-
ingar. En þá risu upp Bretar og Banda-
ríkjamenn og töldu að annað hvort yrðu
Frakkar að samþykkja samkomulagið ó-
breytt eða þá að þeir yrðu að sigla sinn
sjó, því ekki yrði frá þeirri ákvörðun
vikið, að veita Vestur-Þýzkalandi sjálf-
stæði og heimild til takmarkaðs vígbún-
aðar. Þessar hótanir Breta og Banda-
ríkjamanna urðu til þess að frekari um-
ræðum var frestað um málið í Frakk-
landi, enda lýsti nú Mendes France því
yfir, að ekki kæmi til mála að fallast
á þetta samkomulag né annað, nema
deila Vestur-Þjóðverja og Frakka um
Saarhéraðið yrði að fullu leyst áður.
Þar með var einn gálgafresturinn feng-
inn enn þá. Nú var augljóst, að Frakk-
ar hugðust einnig koma þessu samkomu-
lagi fyrir kattarnef. Gripu þá Bretar og
Bandaríkjamenn til þess að reyna að
hraða sem mest hinni formlegu af-
greiðslu málsins. Knúðu þeir það
fram, að fundur Atlantshafsráðsins yrði
haldinn í París um 22. október til Jress
að taka frekari ákvörðun um upptöku
Vestur-Þjóðverja í bandalagið. \'ar nú
stefnt saman Atlantshafsráðinu og full-
trúum liins væntanlega nýja bandalags
í Parísarborg hinn 22. október, en jafn-
hliða var reynt á persónulegum fund-
um Adenauers kanzlara Vestur-Þýzka-
lands og Mendes France forsætisráð-
herra Frakklands, að ná samkomulagi
um Saarhéraðið. Það er mikið og við-
kvæmt vandamál og vafasamt, að það
verði raunar nokkru sinni leyst svo, að
báðir aðilar geti við unað. Hinn síðasta
sumardag — 22. október 1954 — náð-
ist samkomulag um það, að stofna
skyldi nýtt bandalag, sem heit skal The
West European Union“ eða Bandalag
Vestur-Evrópu, og eiga nú aðild að því
eftirtalin ríki: Bretland, Vestur-Þýzka-
land, Frakkland, Holland, Belgía, Lux-
emburg og Ítalía. Bandlag Vestur-Evrópu
er fyrst og fremst hernaðarlegt bandalag
Vestur-Evrópuþjóða til varnar árásum,
sem gera má ráð fyrir frá ríkjum eða
ríkjasamböndum í Austur-Evrópu og þá
aðallega Ráðstjórnarríkjunum. Hinn
sama dag náðist einnig fullt samkomulag
um það milli Frakkland, Bretlands og
Bandaríkjanna, að hernámi Vestur-
Þýzkalands skyldi lokið að fullu og því
boðin innganga í Atlantshafsbandalag-
ið sem fullvalda og jafnréttháu ríki.
Þetta var allt formlega undirritað
hinn fyrsta vetrardag — 23. október
1954 — og mun þess dags að líkindum
lengi minnzt verða í sögu vestrænna
þjóða.
#
Það, sem raunverulega hefur gerzt nú
í stjórnmálum Vestur-Evrópu er þetta:
1. Hernámi Vestur-Þýzkalands, sem
staðið liefur í níu ár, er nú að ljúka.
2. Vestur-Þýzkaland verður aðili að
Atlantshafsbandalaginu, 15. ríki
þess, og verður þar jafnrétthár aðili
þeim ríkjum sem fyrir eru.
3. Nýtt bandalag, The West European
Union, eða Bandalag Vestur-Evrópu,
hefur verið stofnað upp úr Bryssel-
bandalaginu, sem Bretar, Frakkar og
Beneluxlöndin stofnuðu með sér
4 DAGRENNING