Dagrenning - 01.10.1954, Side 7
1948 og hafði að markmiði hernað-
arlega, menningarlega, félagslega og
fjárhagslega samvinnu þessara þjóða.
Nú bætast við í bandalagið Vestur-
Þýzkaland og Ítalía um leið og nafni
þess og samþykktunr er að nokkru
breytt.
Samningar um allt þetta hafa nú ver-
ið undirritaðir af öllum þeim ríkjum,
sem hlut eiga að máli, en eftir er að
fullgilda þá og fer sú fullgilding fram
á löggjafarþingi hvers ríkis urn sig. Hér
er því aðeins um fyrsta áfangann að
ræða, og felli t. d. franska þingið sátt-
málana — einn eða alla — er allt enn
einu sinni hrunið til grunna, sem byggt
hefur verið.
*
A Vesturlöndum fagna menn að von-
um þessum fvrsta áfanga, sem er eins
og ofurlítill sólargeisli eftir svartnættið,
sem skall yfir á Genfarráðstefnunni og
með afgreiðslu Frakklands á Evrópu-
hernum. Þó er enn þá of snemmt að
syngja fagnaðarljóðin, því ýmis ljón geta
enn leynst á veginum. Ýmislegt bendir
þó til þess, að franska þingið samþykki
allar þær breytingar, sem samkomulag
varð um í París 23. október. Veldur því
tvennt. Annað það, að nú vita Frakkar
að verði þeir ekki með upp á þessi býti,
einangrast þeir algjörlega frá hinum
vestrænu lýðræðisþjóðum, og fá fullan
fjandskap Vestur-Þjóðverja, sem þá víg-
búast án eftirlits og íhlutunar Frakka.
En það sem þó mun mestu ráða.um af-
stöðu Frakka er, að með þessum aðgerð-
um er Þýzkalandi skipt til fulls í tvö
andstæð ríki, og það hefur alla tíð verið
hið sameiginlega takmark Rússa og
Frakka, að Þýzkaland yrði aldrei aftur
sameinað. Tilboð Rússa nú urn sameig-
inlegar kosningar í Þýzkalandi og frið-
arsamninga við Austurríki, eru aðeins
blekkingar, því takmarkið hefur ávallt
verið að skipta Þýzkalandi. Og nú er
það að fullu gert. Þjóðverjar urðu að
skuldbinda sig til þess að virða núver-
andi landamæri Vestur-Þýzkalands og
lofa því að fara ekki með ófriði á hend-
ur Austur-Þýzkalandi. Þessir skilmálar
eru fyrst og fremst í þágu Frakka og
Rússa, en ekki Þjóðverja sjálfra, sem
auðvitað vilja endursameiningu Þýzka-
lands. Stjórn Vestur-Þýzkalands er hér
eftir mjög bundin í öllum tilraunum
til sameiningar alls Þýzkalands, og Rúss-
ar mun hér eftir leyfa sér að líta svo
á, að fullnaðarskipting hafi farið fram
og munu sennilega hætta frekari um-
ræðum um sameiningu alls Þýzkalands.
Þessu verði hafa Vestur-Þjóðverjar
keypt frelsi sitt og sjálfstæði.
*
Athyglisvert er það, að á sama tíma
sem Vesturveldin veita Vestur-Þýzka-
landi sjálfstæði á ný og taka það í sam-
tök sín — Atlantshafsbandalagið — er
Nerú, forsætisráðherra Indlands, á
ferðalagi um Kína og leppríki þess.
Augljóst er að þar býr eitthvað undir.
Nerú hefur haft það við orð að undan-
förnu, að segja af sér ráðherradómi, en
vafalaust er það fyrirsláttur einber, hver
svo sem tilgangurinn með honum er.
DAGRENNING 5