Dagrenning - 01.10.1954, Side 11
Með því að efla Þjóðvarnarflokkinn á
kostnað Framsóknarflokksins vinnur
Sjálfstæðisflokkurinn það, sem honum
er mikilverðast, en það er að nánara
samstarf hlýtur að takast með honum
og þeim hluta Framsóknar, sem ekki
hallast að nýkommúnisma, og þannig
tryggir Sjálfstæðisflokkurinn sér örugg-
an bandamann um ófyrirsjáanlega fram-
tíð, því Framsóknarflokkurinn er örugg-
ur með að halda framvegis þingsætum
sínum í tvímenningskjördæmunum og
nokkrum þingsætum í einmenningskjör-
dæmum, þótt Þjóðvörn lami hann og
felli Jjingmenn hans í nokkrum ein-
menningskjördæmum, til hagsmuna
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þjóðvarnarflokkurinn þjónar því á-
gætlega báðum þeim „herrum“, sem
hann hafa skapað — kommúnistum og
Sjálfstæðismönnum. — Hann þjónar
prýðilega hinu nýkommúnistíska hlut-
verki sínu, að sameina í eina heild, und-
ir leynilegri yfirstjórn Moskvavaldsins,
öll „vinstri" öfl úr Alþýðuflokknum,
Framsóknarflokknum og Kommúnista-
flokknum, jafnframt því sem hann myl-
ur það utan úr Framsókn, sem til þessa
hefur gert henni kleift að sýnast „vinstri-
sinnaður" flokkur, og skilur þar lítið
annað eftir en bænda-íhald, sem á fárra
kosta völ annarra en þeirra, að vinna
með Sjálfstæðisíflokknum um næstu
framtíð. Ekki er líklegt að til meiri-
háttar átaka komi á næstu þinguin
Framsóknar út af þessum klofningi, því
fáir forustumenn flokksins fylgja opin-
berlega nýkommúnista arminum, og er
því sennilegt, að Framsókn minnki
smátt og smátt, en verði þó um langan
tíma enn harðsnúinn bændaflokkur, sem
veruleg áhrif liefur á stjórnmál þjóðar-
innar.
Stofnun og starfræksla Þjóðvarnar-
flokksins er eitt bezt hugsaða her-
bragð í íslenzkri pólitík, nú um langt
skeið, o'g þó þessi leikur sé ekki með
öllu hættulaus fyrir þjóðina síðar meir,
er þó hættan ekki mikil eins og sakir
standa.
Til knupendanna
í síðasta hefti Dagrenningar var frá því skýrt, að fyrirhuguð væri nokkur
nýbreytni í útgáfu Dagrenningar. Hefti það, sem nú kemur, er nokkiu
minna en venjulega og stafar það af því, hve stutt er milli þessa heftis og
hins næsta á undan og að desemberheftinu er ætlað að verða þeim mun
stærra. Gert er ráð fyrir að það verði fjölbreyttara að efni en venja hefur
verið til, og komi mun fyrr út. Verður það þá HIÐ FYRSTA EIGIN-
LEGA JÓLAHEFTI DAGRENNINGAR. Vonast er til, að það geti orð-
ið fullprentað um miðjan desember, og verður upplagið haft stærra en
venjulega og selt í lausasölu a. m. k. í Reykjavík og stærri kaupstöðum.
DAGRENNING væntir þess, að kaupendur hennar taki væntanlegri ný-
breytni vel, enda til þess gerð, að ritið geti orðið aðgengilegt fyrir sem flesta.
J. G.
DAGRENNING 9