Dagrenning - 01.10.1954, Qupperneq 20
f - “ \
ATHYGLISYEMT SENDIBKÉF
__________________________/
Fyrir kosningarnar 1953 var nokkuð
um það rætt, að stjórnarskrármenn
reyndu að bjóða fram í einhverjum
kjördæmum. Af því tilefni skrifaði ég
ýmsum þeim mönnum, er fremstir
stóðu að því máli víðs vegar um land og
leitaði álits þeirra um framboð. Flestir
svöruðu þessum bréfum á einhvern veg
og voru svörin næsta misjöfn. Eitt svar-
ið skar sig þó alveg úr um einarðleik
og hreinskilni og hef ég oft ætlað að
láta verða af því að birta það í Dag-
renningu, svo athyglisvert er það og
merkilegt.
Nú læt ég af þessu verða og fer bréf-
ið hér á eftir:
Herra ritstjóri,
Jónas Guðmundsson,
Rvík.
Góði vinur!
Ég held að ekki komi til mála að
stjórnarskrármenn bjóði fram hér í
kjördæminu. Afstaða kjósenda hér til
frambjóðenda markast hér eingöngu af
þrengstu matarpólitík. Menn spyrja að-
■eins um það, hve frambjóðendur séu
líklegir til þess að geta krælt úr ríkis-
sjóði eða á annan hátt til framdráttar
atvinnu á staðnum o. s. frv. og eru al-
veg hættir að hugsa um nauðsyn þess
að atvinnufyrirtæki beri sig fjárhags-
lega. Menn heimta tekjur og láta sig
einu gilda, hvernig þeirra er aflað. Þetta
mun nú vera svona víðar og er ég eng-
an veginn viss um að tími sé til þess
kominn fyrir stjórnarskrármenn að
hefjast handa um framboð og beina
baráttu fyrir hugsjón sinni.
Þjóðin er á hraðri leið niður á við
fjárhagslega og atvinnulega, og væri
þetta allt um garð gengið og kollsteypan
fullkomnuð, ef ekki væri fjárgjafir Ame-
ríku. En á meðan þessu fer fram og allt
hangir uppi og atvinna fólksins er
sæmileg, er ekki til neins að fitja í al-
vöru upp á því, að hafizt verði handa
um stjórnarbreytingu. Hins vegar mun
að því draga, að þjóðin verði að standa
á eigin fótum. Líklega verður það ekki
fyrr en að aflokinni þriðju heimsstyrj-
öldinni. En þá kemur líka hið gullna
tækifæri til þess að koma á fyrirmynd-
arstjórnskipun í þessu landi, en varla
fyrr. Flestir vitrir menn sjá hvert stefn-
ir, en allur þorri manna sér það ekki
eða kærir sig ekki um að sjá það. Ég hef
aldrei verið mjög bjartsýnn á það, að
tillögur okkar í stjórnarskrármálinu
næðu fram að ganga fljótlega. Það verð-
ur ekki að mínu áliti fyrr en núverandi
stjórnarvitleysa hefur siglt öllu í raun-
verulegt strand.
Með beztu kveðju.
Þinn einl.
18 DAGRENNING