Dagrenning - 01.10.1954, Side 21
DR. ADAM RUTllERFORD:
Messíasarhorníð
— Úr bókinni Frelsari heimsins —
Eins og fram kemur á uppdrættinum
á bls. 20 er Messíasarhornið í Pýramíd-
anum mikla skýrt afmarkað, bæði frá
byggingarlegu og rúmfræðilegu sjónar-
miði. Það er rétthyrndur þríhyrningur,
langliliðin fellur saman við síðustu
33.512 þumlungana af fyrri uppgang-
inum, grunnlínan liggur í láréttri
stefnu með gólfi Drottningarsalarins og
lóðrétta hliðin er með norðurvegg
Stallagangsins mikla, en „sínus“ Messí-
asarhornsins er nákvæmlega fjórði hluti
af tvíveldisróttinni af „pí“.
Grunnlína Messíasarhornsins er mjög
merkilegt rannsóknarefni og opinber-
ar mikið. Norðurendi liennar markar
fæðingardag Jesú, 29. sept. árið 2 f. K.
samkvæmt þumlungs-árs-mælikvarðan-
um, og á táknlegan hátt lýsir þessi stað-
ur nákvæmlega ríkjandi ástandi þegar
hann fæddist, eins og áður hefur verið
lýst. Grunnlínan, sem er lárétt, liggur
nákvæmlega í sömu hæð og gólflína
Drottningarsalarins og er 30.043 pýra-
mídaþumlungar á lengd. Þótt sjálfur
suðurendi grunnlínunnar marki ekkert
ártal, kemur eigi að síður í ljós, að þeg-
ar dregin er 30.043 þuml. lína með tíma-
talslínunni á gólfi fyrri uppgangsins,
komum vér að dagsetningunni 14. okt.
árið 29 e. K. — nákvæmlega þeim degi,
sem Jesús var skírður í ánni Jórdan,
eins og vér höfum fullvissað oss um eft-
ir öðrum leiðum en heimildum Biblí-
unnar — sjá uppdráttinn á bls. 20.
Þannig er suðurendi grunnlínu Messí-
asarhornsins táknlega tengdur skírn
Krists, og þegar vér förum að rann-
saka táknmálið í sambandi við þennan
stað, sjáum vér að kringumstæðurnar
þegar hann var skírður, tilgangurimt
og árangurinn er allt sýnt þar á meist-
aralegan hátt. Lengd grunnlínunnar,
mæld eftir kvarðalínunni, sýnir 30 ár
og 15 daga frá fæðingu Krists, og þessi
lína liggur á fleti hins mannlega full-
komleika, eins og vér höfum séð hér að
framan. Þetta sýnir greinilega, að þeg-
ar Kristur hafði lifað hér á jörðu 30 ár
og 15 daga, þá fórnaði hann sínu full-
komna, mannlega lífi, og fórninni var
veitt viðtaka með orðunum: „Þú ert
minn elskaði sonur, sem ég liefi vel-
þóknun á.“ Það var „skírn til dauð-
ans,“ og hann var „angistarfullur þang-
að til henni var lokið“ á Golgata, þeg-
ar hann hrópaði: „Það er fullkomnað.“
Hann sagði: „Líkama minn gef ég fyr-
ir líf heimsins". Hefði hann ekki fórn-
að sínu fullkomna, mannlega lífi fyrr
en á krossinum, væri grunnlína Messí-
asarhornsins 33i/£ þuml í stað 30 þuml.,
og í spádómi Daníels hefði þá ekki ver-
ið sagt fyrir, að hann mundi „afnema
sláturfórn og matfórn í miðri (sjöundu)
vikunni“ — um haustið 29 e. K. — sjá
uppdrátt á bls. 26 í 51. hefti. Fórnin var
þá lögð á altarið, og hann „úthellti sál
sinni til dauðans“ síðari helming 70. spá-
dómsvikunnar, þ. e. 3J4 spádómsdag eða
DAGRENNING 19