Dagrenning - 01.10.1954, Side 24
að fullu framkvæmd þegar Faðirvorinu
hefur verið svarað og Guðs vilji verður
„svo á jörðu sem á himni.“ En í loka-
köflum síðustu bókarinnar í Biblíunni
er afdráttarlaust sagt fyrir, að sá tími
sé nú í nánd, er mannleg íulkomnun
verði að veruleika og hið illa afmáð:
„Og Hann mun þerra hvert tár af aug-
um þeirra, og dauðinn mun ekki fram-
ar til vera, hvorki harmur né vein né
kvöl er framar til, því að hið fvrra er
farið.“ í Pýramídanum mikla mi sjá, að
komið er að þessari sæluskipan á tíma-
skránni, samkvæmt táknum og ártölum
inn eftir Drottningarsalnum, að veggn-
um, sem fjær er (þ. e. suðurveggnum),
og gólfflötur hans táknar svið hinnar
mannlegu fullkomnunnar, eins og lýst
hefur verið. Svo sem sannað hefur verið
í fvrri bókum í þessum flokki, táknar
sjálfur Drottningarsalurinn mannlega
fullkomnun og þá umbótaþróun, sem
að henni styður. Dyrahæðin inn í
Drottningarsalinn er 67,6 pýramída-
þumlungar, en það táknar hæð hins
fullkomna manns. Með því er þó alls
ekki sagt, að allir fullkomnir menn
verði jafnháir, en eigi að síður verð-
ur að taka eitthvert hæfilegt mál til
þess að tákna ásigkomulag eða „vöxt“
hins fullkomna manns. Nú eru 67,6
þuml. aðeins rúml. 67þuml., en það
er sama hæð og 5/2 íet °g 7 þuml., sem
venjulega er talin meðalhæð rétt skap-
aðra manna — og þess vegna vel til
fallið rúmfræðilegt tákn um sköpulag
hins fullkomna manns. Hæðin frá gólfi
upp á efri enda loftrásanna á norður
og suður veggjunum í Drottningarsaln-
um er einnig 67,6 pýramídaþumlung-
ar og sama hæð er einnig á stóra inn-
skotinu í neðri hluta austurveggsins.
Rjáfur lárétta gangsins er einnig í 67,6
þuml. hæð frá gólfinu í Drottningar-
salnum. Ennfremur er sama hæð þar
sem hallandi rjáfur fyrri uppgangsins,
sem nefndur er Lögmálsgangurinn, end-
ar og markar þess vegna byrjun loftlín-
unnar á lárétta ganginum, en þessi
snertipunktur er í lóðréttri línu yfir
„skírnarpunktinum", þ. e. suðurenda
grunnlínu Messíasarhornsins, sem er á
sama hæðarfleti og gólfið í Drottning-
arsalnum. Þess vegna er þessi snerti-
punktur (við enda Lögmálsgangsins og
byrjun loftlínu lárétta gangsins) ná-
kvæmlega í 67,6 þuml. hæð frá staðn-
um, sem táknar skírn Krists. Þetta sýn-
ir á dásamlegan hátt að í skírn sinni
hefur Kristur staðið í fullri „stærð“ hins
alfullkomna manns og fórnað sínu full-
komna, mannlega lífi af frjálsum vilja.
En þessi lóðrétta 67,6 þumlunga lína er
einnig tengilínan, sem markar byrjun-
ina á innskotskerfi láréttu ganganna.
í lárétta ganginum eru tveir gólfflet-
ir. Gólf fyrri og lengri hluta gangsins
er á sérstökum hæðarfleti og gólf styttri
hlutans er á sama hæðarfleti og gólfið
í Drottningarsalnum, en það er flöt-
urinn, sem liggur að „Fullkomnunar-
punktinum" í hinum enda Drottning-
arsalsins. Þessi lokaflötur af gólfi lárétta
gangsins kemur á lóðréttu línuna þar
sem lárétti gangurinn byrjar, við „skírn-
arpunktinn", sem er tengipunkturinn
við grunnlínu Messíasarhornsins og ár-
ið, sem þar er markað, samkvæmt þeim
sérstaka kvarða, sem á við lárétta ganga-
innskotið, er nákvæmlega árið, sem
Adam var skapaður, samkvæmt heimild-
um elztu og áreiðanlegustu handrita
Biblíunnar. (Sjá nánar 2. bók Pýra-
mídaútgáfunnar bls. 24—53). Bvrjunin
á loftlínu lárétta gangsins er 67,6 þuml.
lóðrétt fyrir ofan þennan stað — hæð
22 DAGRENN I NG