Dagrenning - 01.10.1954, Side 25
hins fullkomna manns. Þarna sjáum
vér því Adam standa í ásigkomulagi
hins fullkomna manns, á nákvæmlega
sama staðnum, sem Kristur stóð í tákn-
legri merkingu, þúsundum ára síðar, og
bauð fram sitt fullkomna mannlíf Evrir
líf Adams, sem upphaflega var fullkom-
ið, en var glatað — fullkomið lausnar-
gjald. (Á grísku Antilutron, sem þýðir
verð — I. Tímóteusarbréf 2. kap. 6. v.).
Eigi má heldur láta þess ógetið, að
þessir staðir, sem tákna bæði byrjun og
endi á fórn Krists, m. ö. o. skírnina og
krossfestinguna, eru á þessari lóðréttu
tengilínu, sem sýnir fullkomna frið-
þægingu Krists fyrir Adam og niðja
hans.
Adam, og þar af leiðandi afkomend-
ur hans, héldu ekki áfram á vegi full-
komleikans, því þá hefði hæð lárétta
gangsins alls staðar verið 67,6 þuml.
Afleiðingin af falli Adams varð sú, að
hann og allir afkomendur hans hafa í
óeiginlegri merkingu þurft að ganga
með beygt höfuð og hálfbognir upp lá-
rétta ganginn, þar sem svo mjög er dreg-
ið úr hæð hans, að hún er aðeins 47
þumlungar. Hái lokaspölurinn af gang-
inum rétt áður en kemur inn í Drottn-
ingarsalinn er 67,6 þuml. og sýnir það
hugmynd Guðs og vilja um mannkyn-
ið — fullan „vöxt“ hins mannlega full-
komleika — og markar þar af leiðandi
inngangstímabilið, þegar hann er að
undirbúa og koma á þeirri þróun, er
fer á undan tíma umbótanna, sem enda
með hinni langþráðu fullkomnun
mannkynsins á þeirri stund, sem mörk-
uð er með endanum á gólfi Drottning-
arsalsins (þ. e. við suðurvegg salarins).
Hið hallandi þrep, sem tekur við
strax og Lögmálsganginum lýkur, er
nákvæmlega eitt heilagt cubit (25 þuml.)
Pýramída—Betlehem stefnan liggur yf-
ir hinn forna botn Rauðahafsins, þar
sem það klofnaði og ísraelsmenn gengu
þurrum fótum yfir, svo sem frá er skýrt
í II. Mósebók. Vegalengdin frá Pýra-
mídanum mikla að staðnum, þar sem
þeir fóru yfir, er 648 pýramída-furlong,
á breidd. Hið helga cubit táknar hinn
fullkomna, guðlega mælikvarða. Gólf-
flötur lága, lárétta gangsins sker þetta
fullkomna, heilaga cubit-þrep í tvennt,.
en það á að tákna, að þeir, sem fara lá-
rétta ganginn, m. ö. o. Adam og allt
mannkynið, sem frá lionum er komið,
hafa brotið lögmál Guðs og ekki náð
hinu guðlega marki.
Áður en vér höldum áfram að rann-
saka hið dásamlega táknmál Pýramíd-
ans mikla, sem bendir á tíma þriðja höf-
uð þáttarins í ævi Krists, m. ö. o. dauða
hans og upprisu, skulum vér athuga
aðra hlið Messíasarhornsins.
BETLEHEM OG RAUÐAHAFIÐ.
Sé lína dregin í austur frá Pýramíd-
anum mikla, þannig að hún myndi
Messíasarhornið (26° 18' 9,7") við
breiddarbaug hans að norðan, kemur í
ljós, að hún stefnir beint á Betlehem,
staðinn þar sem Kristur fæddist 2139
árum eftir hið stjarnfræðilega einskorð-
aðra ártal Pýramídans, árið 2141 f. K.
(Landfræðingar og landmælingamenn
eru vinsamlega beðnir að athuga, að
þetta er bein stefna (rliumb-line = lína,
sem sker alla hádegisbauga í sama
horni), en ekki hin mikla boglína. Það er
athyglisvert, að vegalengdin frá Pýramíd-
anum mikla til Betlehem eftir stóru
boglínunni er 2139 furlong (1 pýramída-
furlong = 8000 pýramídaþuml.) Eft-
ir mælikvarðanum 1 furlong = J ár,
DAGRENNING 25