Dagrenning - 01.10.1954, Side 28
Vér gætum öðlast hið fullkomna líf
eftir hinu guðlega lögmáli, ef oss væri
unnt að breyta eftir því í einu og öllu,
en liinir fornu ísraelsmenn gátu það
ekki og vér getum það ekki, því að til
þess þarf fullkomna menn, þar eð eng-
inn ófullkominn maður getur af eigin
rammleik haldið hið fullkomna lögmál
Guðs. Eina leiðin upp úr ofangangin-
um er því gegnum brunngöngin. * Þau
eru þröng. Tveir geta ekki farið þau
samhliða. Það er þess vegna einkamál
milli hvers einstaks manns og skapara
hans. Séum vér liðugir, er hugsanlegt að
vér gætum klifrað upp nokkurn hluta
brunnganganna, hjálparlaust, en í efri
hluta þeirra, sem er lóðréttur, þurfum
vér aðstoðar við ofanfrá. Enginn kemst
því upp af eigin rammleik. En fyrir þá
náð og aðstoð, sem oss er veitt, þegar
vér komum upp undir brúnina, verður
oss ljóst að vér komumst aðeins upp
með því að fara beint gegnum upp-
]) Egyptalandsfræðingur einn hefur kom-
ið fram með þá kenningu, að brunngöngin
hafi verið eftirlitsgöng, gerð þegar byggingu
Pýramídans var lokið. Mætti ég spyrja: Eft-
ir hverju þurfti að líta? Egyptar voru snill-
ingar í líksmurningu, og hafi múmía verið
lögð í Pýramídann mikla, hefur áreiðan-
lega verið ástæðulaust að líta eftir henni,
því að hún gat haldist í ágætu ástandi um
þúsundir ára. Eftirlit með pýramídanum
sjálfum, rétt eftir að lokið var að reisa
hann, var einnig algerlega óþarft, því að
hann var svo vel byggður, að engra við-
gerða gat verið þörf næstu áraþúsundirnar.
Vér höfum beðið lengi og árangurslaust og
munurn þurfa að bíða lengi enn eftir full-
nægjandi svari við þeirri spurningu, eftir
hverju hafi þurft að líta. Vér getum rólegir
hafnað þessari kenningu sem hverri annati
fjarstæðu, er ekki taki að ræða frekar um.
sprengdu „gröfina", og þaðan höldum
vér áfram inn í sali lífsins, fyrir ofan
(Konungssalinn og Drottningarsalinn)
gegnum gangana, sem að þeim liggja.
M. ö. o. það er aðeins ein leið fyrir allt
mannkynið og hvern einstakling þess,
til þess að öðlast frið, hamingju og
fullkomið líf, langt fjarri dauðanum,
sem sýndur er í Neðanjarðarsalnum, og
sú leið er gegnum dauða og upprisu
Jesú Krists, sem táknuð er með upp-
sprengdu „gröfinni“. Vér verðum sjálf
að koma beint upp gegnum upp-
sprengdu „gröfina“, ef svo mætti að
orði kveða, þ. e. a. s. vér verðum að
viðurkenna að Jesús Kristur hafi gerzt
persónulegur frelsari vor með dauða
sínum og upprisu. Eða eins og Páll post-
uli segir í Rómverjabréfinu 10. kap. 9.
v. „Því að ef þú játar með munni þínum
Drottinn Jesúm og trúir með hjarta
þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá
dauðum, muntu hólpinn verða.“
LEIÐRÉTTING.
Vér höfum vikið að því áður í þess-
ari bók, að þótt gólf Stallagangsins mikla
haldi áfram í sömu línu og gólf Lög-
málsgangsins á undan, er hið geysiháa
rjáfur Stallagangsins mikla hækkað um
286 þumlunga upp fyrir loftlínu Lög-
málsgangsins, en það er leiðréttingarein-
kennið, sem felur í sér mótvægið, er veg-
ur móti einkennisskekkjuni og mundi
færa ytri línur Pýramídans í fullkomið
form, ef það væri notað. Spurningin er
því þessi: Hvaða máttur er það, sem ver-
ið er að sýna með leiðréttingareinkenn-
inu? Þar sem Stallagangurinn mikli byrj-
ar er eins og eitthvert feikilegt afl hafi
sprengt „gröfina" upp innan frá og um
leið lyft rjáfrinu gegnum sjö þykk
X
26 DAGRENNING