Dagrenning - 01.10.1954, Page 30
pýramídi og sú fyrirmynd, sem allt
mannvirkið er smíðað eftir. Líkingamál
Biblíunnar opinberar oss, að þessi steinn
muni verða hafinn hátt, lagður á sinn
rétta stað og allt fært til samræmis við
hann og sniðið eftir honum. Ritning-
arnar segja oss, að Guð hafi hafið Jesú
hátt, svo að hann skyldi verða sá, sem
fremstur væri í öllu.“ „Því að þetta var
ásetningur hans, sem hann hafði með
sjálfum sér ákveðið að framkvæma er
fylling tímans kæmi —: að hann ætlaði
að safna öllu því, sem er á himnum, og
því, sem er á jörðu undir eitt höfuð, í
Kristi“. Vissulega er „steinninn, sem
smiðirnir höfnuðu, orðinn að hyrningar-
steini". Minnist orða Sakaría spámanns:
„og hann mun færa út hornsteininn og
þá munu kveða við fagnaróp: Dýrðleg-
ur, dýrðlegur er hann!“ Það er einnig eft-
irtektarvert, að „Hornsteinninn" á graf-
hýsinu yfir gröf Sakaría spámanns, sem
sagði þessi orð, er réttur pýramídi. Þetta
pýramída-krýnda grafhýsi Sakaría er enn
til utan við Jerúsalem. Það er í hinum
hrjóstruga Jósafatsdal milli gamla must-
erissvæðisins og Olíufjallsins. í þessum
mikla grafadal er ekkert annað minnis-
merki með pýramída-hyrningu.
Þegar höfundur bókar þessarar var á
ferð í Jerúsalem, skoðaði hann pýra-
mídann við gröf Sakaría og ljósmyndaði
hann. Þessi pýramídi er höggvinn í
klett, eins og gröfin undir honum. Hann
er efnismikill og gæti vel verið álíka
stór og hinir miklu tindsteinar á sum-
um risa-pýramídunum í Egyptalandi.
Ef heimurinn á að verða leiðréttur,
þarf að koma hyrningarsteininum, sem
táknar hinn upprisna Krist, fyrir uppi
á sínum rétta stað, eins og sagt er í spá
dómnum, að enda þótt „steininum" væri
hafnað í fyrstu, „er hann þó orðinn að
hyrningarsteini". En hvers vegna létu
smiðirnir tindsteinnin aldrei á sinn stað
á pýramídanum mikla, og hvernig verð-
ur ástatt þegar honum hefur verið kom-
ið fyrir uppi á sínum stað? Þar sem
grunnur pýramídans er minni en grunn-
ur hins fullkomna pýramída, sem Guð
ætlar að reisa að lokum, er efsti flötur
Pýramídans, sem tindsteinninn á að
hvíla á, þar af leiðandi nokkru minni,
eins og smiðirnir skildu við hann. „Tind-
steinninn“ eða „hyrningarsteinninn"
táknar Krist, en hann er alfullkominn,
og þess vegna var ekki hægt að láta
koma fram neina villu eða skekkju í
tindsteininum. Hann var því teiknaður í
fullri stærð, samkvæmt uppdrætti Guðs
af fullkomnum pýramída. Og því var
það, að þegar smiðirnir ætluðu að fara
að leggja „tindsteinninn“ til lags, reynd-
ist hinn ófullkomni flötur þeirra of lít-
ill fyrir hann, og þess vegna var hann
aldrei látinn á Pýramídann. Það var
„steinninn, sem smiðirnir höfnuðu" og
varð að „ásteytingarsteini og hneykslun-
arhellu". Þannig fór einnig um Krist,
hinn mikla, táknlega „tindstein". „Hann
var fyrirlitinn og menn forðuðust hann“,
og hann varð að „ásteytingarsteini og
hneykslunarhellu". Skekkjan var vitan-
lega 286,1 þuml., eða sama og skekkju-
vísirinn, en ummál hins ófullkomna
toppflatar er 2002,7 pýramídaþuml, eða
nákvæmlega 7 sinnum skekkjuvísirinn.
Og er það ekki vel til fallið, að fyrir-
litning hins synduga mannkyns á hinu
syndlausa lambi Guðs skuli vera táknuð
með tölu, sem er sjöfallt tákn syndar-
innar!
28 DAGRENNING