Dagrenning - 01.08.1956, Side 3
2. TOLUBLAÐ
11. ÁRGANGUR
DAGRENNING
Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavík. Simi 1196
QAGA ísraelsþjóðarinnar, meðan hún var að mótast og verða stamstaeð
þjóð, var ekki þrautalaus. Hvað eftir annað hagaði hún sér svo
heimskulega, — vanrækti svo Guðs boð — að hún missti sjálfstæði sitt
og varð að lúta erlendum yfirráðum.
Svo var ástatt þegar Samson fæddist. Saga hans hefst með þessum
orðum: „ísraelsmenn gjörðu enn af nýju það, sem illt var í augum Drott-
ins; þá gaf hann þá í hendur Filistum í fjörutíu ár.“
En þegar þjóðin hafði verið það lengi í ánauð og niðurlægingu, að
hún iðraðist gjörða sinna og sneri sér til Guðs, vakti hann upp meðal
sona hennar einhvern, sem varð verkfæri hans til að bjarga henni frá
glötun.
Einn þessara manna var Samson, sem Drottinn gæddi slíku heljarafli,
að menn minnast þess enn í dag. Með honum hófst raunverulega frelsun
ísraelsþjóðarinnar undan ánauð þjóðflokkanna- umhverfis þá. Engillinn,
sem boðaði fæðingu hans sagði: „Sveinninn skal vera Guði helgaður allt
í frá móðurlífi, og hann mun byrja að frelsa ísrael af hendi Filista.“
Sögu Samsonar kunna flestir menn í aðaldráttum. Um hið yfirnáttúru-
lega afl hans og fjöllyndi hans í ástarmálum, sem að lokum varð hon-
um að falli, hefir margt verið ritað og rætt, og eins um hið síðasta afrek
hans, er hann kippti máttarstoðunum undan hofi Dagons og fyrirfór þar
sjálfum sér og öllum höfðingjum Filista. Þeir atburðir verða látnir
liggja milli hluta hér, a. m. k. að þessu sinni. Á hinu vil ég vekja at-
hygli, hversu ýmislegt er líkt með hetjunni Samson, sem „byrjaði á
því að frelsa Israel af liendi Filista“, og Frelsaranum — Jesú frá Nazaret
— sem sendur var „til að vera frelsari heimsins,“ — þó margt sé einnig
ólíkt með þeim.
Engill Drottins birtist móður Samsonar og sagði við hana: „Þú munt
þunguð verða og son ala.“ Engill var einnig sendur til Maríu, móður
Jesú, sem sagði við hana: „Sjá þú munt þunguð verða og son fæða, og
þú skalt láta hann heita Jesúm.“ Báðir voru þeir „Guði helgaðir allt í
frá móðurlífi.“ Hið mikla líkamlega afl og styrkur Samsonar minnir á
hinn mikla andlega mátt Jesú, sem kom svo glöggt fram í kraftaverkum
hans.
Samson var fyrsti Nazarei, sem frá er sagt í Biblíunni, og uppalinn
samkvæmt reglum þeirra. Þess vegna skar hann ekki hár sitt, né neytti
DAGRENNING 1