Dagrenning - 01.08.1956, Blaðsíða 6
----------------------------------------------------------------------^
sögunnar fullbúin. Til þeirrar breytingar má rekja flesta þræði þeirra um-
skipta, sem síðan hafa orðið.
Fæstir gera sér þess fulla grein, að þessar breytingar boða mikil tíma-
mót í sögu mannkynsins. Þau tímamót eru sögð fyrir í Biblíunni og
tákna þar, að „hin yfirstandandi vonda öld“ er að líða undir lok.
Þessi mikla bylting gerist ekki á stuttum tíma. Hún tekur fjörutíu ár
— tíma einnar kynslóðar.
Nú viðurkenna flestir, að þessi bylting hófst 1914, með fyrstu heims-
styrjöldinni, því fyrir þann tíma hafði allt líf mannanna um margar aldir
verið í nokkurn veginn föstum skorðum. En þá skall byltingin á og síð-
an hafa breytingarnar haldið áfram stig af stigi, og nú eru endalokin að
nálgast.
Það er niðurbrot hinnar gömlu skipanar, sem'fram er að fara, en jafn-
framt er lagður grundvllöurinn að „nýjum heimi“, sem rís á rústum hins
gamla. Niðurbrotið verður ekki á einu sviði aðeins eða fáum, heldur á öllum
sviðum mannlegs lífs og samskipta. Byltingin, sem nú stendur yfir, er þess
vegna allt í senn félagsleg, stjórnmálaleg og trúarleg.
HIN FÉLAGSLEGA BYLTING er margþætt. Hún kemur fram í verð-
hruni peninganna, gjörbreyttum viðskiptaháttum þjóðanna, gjörbreyttri
afstöðu hinna vinnandi stétta til atvinnurekendanna, gjörbreyttu viðhorfi
fólks til fræðslu og menningar. Sumt af þessu er „gott“, en annað „illt“, eftir
því hvort þeim þroska er náð eða ekki, sem er nauðsynlegur undanfari
breyttra hátta.
HIN STJÓRNMÁLALEGA BYLTING er mjög greinileg. Fyrir
1914 voru konungsríki Evrópu og furstadæmi nær hálfu hundraði, en nú
eru örfá eftir. Það er mjög athyglisvert, hvernig stjórnmálakerfið hefur
breytzt. Meðal hinna hvítu, vestrænu þjóða hefur frelsið aukizt á öllum
sviðum, frá því sem var, og eru það Bretar og Frakkar og síðar einnig
Bandaríkjamenn, sem eru höfuðverðir þess og brautryðjendur, en meðal
hinna þeldökku þjóða, hefur ný tegund einræðis, kommúnisminn, náð al-
gjörum yfirráðum, svo þrælahaldið, kúgunin og ófrelsið er nú margfalt
verra í þeim löndum en það var á tímum hinna „alvöldu" keisara og ein-
ræðisherra fyrri tíma. Glæpastarfsemi og manndráp Gengis Kahns, Timijr-
lenks, Ivans grimma og Péturs mikla eru hreint barnaleikspil samanborið
við manndráp og glæpaferil Jóseps Stalins, eins og honum er lýst nú af hans
fornu samherjum, kommúnistaforingjunum í Kreml, sem bezt ættu um
þetta að vita.
Á TRÚMÁLASVIÐINU er þessi bylting einnig mjög augljós.
Nýheiðnin birtist í ótal myndum. Materialisminn eða efnishyggjan
er þar róttækasti þátturinn, en í kjölfar hennar sigla svo ýmiskonar heiðn-
- ---------------------------------------------------------------------
4 DAGRENNING