Dagrenning - 01.08.1956, Side 15
-------------------------------------------------------------------------------
komið á, þó að því sé enn ekki lýst yfir formlega. Taka Súez-skurðarins, sem
vafalaust er gerð með samþykki Rússa, svarar til þess atburðar, sem hleypti
raunverulega af stað síðustu heimsstyrjöld, en það var skipting Póllands.
Þá hófu Bretar og Frakkar sameiginlega styrjöldina, sem leiddi til falls
Hitlers og Mussolinis, og nú eru þeir einnig að hefja síðustu styrjöldina,
sem leiðir til falls Títós, Nassers og Bulganins og allra annarra smærri og
stærri einræðisherra, sem þrifist hafa í skjóli þeirra.
★
LOKAÞATTUR hinnar fjörutíu ára löngu styrjaldar er nú að hefjast
við Miðjarðarhaf. Allir spádómar segja fyrir, að þar muni hún hefjast og
þar muni hún fyrst og fremst verða háð, en breiðast þaðan út um allan
heim. Það eru lokaátökin, áður en veldi Satans, með öllum sínum útibú-
um, hrynur til grunna. Athyglisverðasti spádómurinn um það sem nú er
að gerast er í 11. kapitula Daníelsbókar, sérstaklega frá 21. versi og út
kapitulann.
Það er spádómurinn um baráttuna milli „konungsins norðurfrá“ og
„konungsins suðurfrá". í spádómi þessum er með orðinu „konungur“ átt
við „heimsveldi“, en ekki við einstaka konunga eða valdamenn. 1 spádóm-
um Daníels er þessi notkun orðsins „konungur“ algeng. Má þar t. d. benda
á 7. kapítulann, um dýrin fjögur. Þar segir: „Þessi stóru dýr, fjögur að
tölu, merkja það, að fjórir konungar munu hefjast á jörðunni.“ Nú vita
allir, að þar var spáð um fjögur heimsveldi: Babyloniuríki, Meda- og Persa-
ríki, Grikklandsríki og Rómaríki.
Spádómurinn skilst ekki fyrr en hinum gamla heimi, Asíu, Evrópu og
Afríku hefur verið skipt í tvö „konungsríki“: „Konungsríkið norðurfrá“
og „Konungsríkið suðurfrá“. Þetta merkir greinilega það, að allt þetta
landflæmi kemur til með að lúta yfirráðum tveggja stórvelda og ræður
annað norðurhlutanum, en hitt suðurhlutanum.
Ef vér nú lítum á hnattlíkan eða kort, og drögum línu á það við suður-
takmörk kommúnistaríkjanna, sjáum vér, að fyrir norðan línuna eru Rúss-
land og leppríki þess öll, svo og Kína og Japan, sem mun ánetjast Rúss-
um. Þetta er ríkið „norðurfrá". Fyrir sunnan línuna eru lönd Breta og
Frakka í Asíu, svo og öll Arabaríkin og Afríka, en í Evrópu: Italía, Frakk-
land, Sviss, Vestur-Þýzkaland, Holland, Belgía og loks Bretland. Það sjá
allir, að þetta em þau landsvæði og lönd í Asíu, Afríku og Evrópu,
sem Bretar hafa ráðið síðustu tvær aldimar, ásamt Frökkum, sem nú em
orðnir hrein bandalagsþjóð Breta. Þetta er ríki „konungsins suðurfrá“.
Með öðrum orðum: „Konungurinn norðurfrá“ er Rússland og sam-
bandsríki þess og fylgiríki. „Konungurinn suðurfrá“ er Bretland og sam-
.-----------------------------------------------------------------------------
DAGRENNING 13