Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 8
8
Fyrirtækið Víkingbátar afhenti
fyrir skömmu 13 metra Víking-
fiskibát til útgerðar í Noregi og
segir Júlíus B. Benediksson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
að umtalsverð tækifæri felist í
bátaframleiðslu fyrir norskan
markað - sem og raunar önnur
nágrannalönd okkar. Til að
mynda er nú í smíðum hjá fyrir-
tækinu sérútbúinn bátur sem
fara á til Grænlands og verður
notaður þar til hafrannsókna.
Sá bátur er sérstyrktur fyrir sigl-
ingar í ís og með sérstökum
hlera á bakborðshlið til að koma
vélsleða fyrir á þilfari bátsins.
Fyrirtækið Víkingbátar var
stofnað árið 2012 þegar það
hóf á nýjan leik framleiðslu á
Víkingbátum sem hafa verið á
markaði hér á landi allt frá árinu
1985. Fyrirtækið keypti síðan
framleiðslu Sómabátanna, sem
sömuleiðis eiga sér langa sögu
hér á landi og má því segja að
Víkingbátar ehf. komi inn á
bátamarkaðinn með þraut-
reynd gæðamerki í bátafram-
leiðslu þó fyrirtækið sjálft sé
kornungt. Til fyrirtækisins hafa
ráðist reyndir starfsmenn úr
framleiðslu beggja áðurnefndra
bátasmiðja og því mikil þekking
á bátasmíði til staðar innan Vík-
ingbáta.
Öflugur fjölveiðibátur til Noregs
Norski báturinn Vardøjenta fékk
sannkallaða eldskírn þegar
honum var siglt til Noregs eftir
afhendingu því mikill stormur
var á leiðinni og allt upp undir
15 metra ölduhæð. „Norð-
mennirnir létu það ekki á sig fá,
settu vel af sjó í lestina og
sigldu heim. Báturinn sannaði
sig heldur betur sem sjóskip á
leiðinni,“ segir Júlíus en út-
gerðin er í Vardö sem er ein
nyrsta byggð Noregs og tók
heldur lengri tíma að sigla
norður með norsku ströndinni
en frá Íslandi yfir til Noregs.
„Það má segja að Vardøjenta
sé nokkurs konar fjölveiðibátur.
Hann er búinn til línuveiða með
bala, netaveiða og krabbaveiða.
Í bátnum eru línuspil og rennur
frá Beiti ehf. en til viðbótar var
síðan settur búnaður um borð í
Noregi þegar báturinn kom
þangað. Þetta er gríðaröflugur
bátur og vel búinn,“ segir Júlí-
us.
Júlíus B. Benediktsson, framkvæmdastjóri Víkingbáta ehf. „Mikil tæki-
færi eru í útflutningi smábáta frá Íslandi.“
Norski báturinn Vardøjenta var afhentur frá Víkingbátum fyrir
skömmu. Báturinn sannaði sig á heimsiglingunni sem úrvals sjóskip
en mikill vindur var á leiðinni og ölduhæð að 15 metrum.
B
á
ta
sm
íði