Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 24
24
„Það hefur gengið illa hjá okk-
ur, eins og hjá flestum. Það er
of mikil loðna í sjónum. Fisk-
urinn hefur legið í henni núna í
rúman mánuð og lítur varla
upp frá henni. Það er bara búin
að vera veisla. Steinbíturinn
gaf sig á tímabili og komst
Björn Elías í rúm 20 tonn í róðri
í þrígang. En að öðru leyti hefur
þetta verið lélegt og gæftir
hafa verið með eindæmum erf-
iðar í allan vetur. Menn muna
ekki eftir öðru eins síðastliðin
40 ár,“ segir Hjalti Þór Þorkels-
son, annar tveggja skipstjóra á
línubátnum Hálfdáni Einarssyni
ÍS-128 frá Bolungarvík.
Hálfdán hét áður Hrólfur
Einarsson ÍS-255. Hann fór í
slipp í ágúst í fyrra og var breytt
hjá Siglufjarðar Seig. Hann var
lengdur um tæpan þrjá og hálf-
an metra og við það fór hann úr
15 brúttótonnum í 30 brúttó-
tonn. Báturinn fékk heitið Hálf-
dán Einarsson, en Hálfdán var
einn fengsælasti skipstjóri Bol-
ungarvíkur á síðustu öld og var
jafnt stofnandi Völusteins ehf.,
ásamt Einari Guðfinnssyni árið
1953, sem gerir út Hálfdán.
Hjalti Þór segir að það hafi
verið fiskur fyrir utan fjörðinn
en það hafi ekki verið hægt að
ná í hann vegna tíðarfarsins.
Hann segir að talsvert sjáist af
loðnu og menn bíði eftir að hún
leggist á botninn og drepist. Í
framhaldinu leggist fiskurinn
jafnvel í dauðu loðnuna.
„Og enn virðist lóða á loðnu
hér fyrir utan, svo nóg virðist af
henni ef það er rétt. En hún er
dreifð.“
Á flótta undan ýsunni
„Fiskurinn étur sig veikan af
þessu og getur ekki meir. Það
er ótrúlegt að sjá fisk sem
leggst í loðnuátið. Kviðurinn á
honum verður eins og mött
rúða. En við erum að vonast til
þess að það sjái fyrir endann á
þessu. Það er fiskur hér um öll
grunn en hann tekur bara ekki
línu,“ segir Hjalti Þór.
Tvær áhafnir eru á Hálfdáni
og eru þrír á bátnum í einu.
Skipstjóri á móti Hjalta Þór er
Björn Elías Halldórsson og aðrir
í áhöfnunum eru Birgir Már Jó-
hannsson, Guðbjarni Karlsson,
Ómar Örn Sigmundsson og
Birgir Loftur Bjarnason.
Hjalti Þór segir að vertíðin
hafi verið með eindæmum lé-
leg og það grátlega sé að nógur
fiskur hafi verið í sjónum í allan
vetur en það hafi bara ekki ver-
ið hægt að ná í hann. Bátarnir
hafi rétt náð að komast út í
Deildarhorn og dögum saman
ekki neitt vegna veðurs. Ýsan
hafi líka verið að gera mönnum
erfitt fyrir og menn séu nánast
á flótta undan mikilli ýsugengd.
„Þetta er bara eins og maðurinn
sagði að það vantar menn með
pung til þess að stjórna sjávar-
útvegsráðuneytinu,“ segir Hjalti
Þór.
Hann segir að sömu erfið-
leikarnir virðist hrjá alla smá-
bátaútgerðina. Að vísu hafi ver-
ið veiði fyrir sunnan fyrir vertíð-
ina í febrúar. Þó hafi gæftir ver-
ið líka stopular þar.
„Þetta hefur bara verið mjög
leiðinlegur vetur að eiga við og
með tilheyrandi tekjumissi fyrir
alla. Það eru engin uppgrip í
smábátasjómennskunni um
þessar mundir.“
Hann segir að þegar illa
gangi í veiðum dragist saman í
öllum afleiddu störfunum. Stór
hópur vinni við beitingar í landi
og vélsmiðjur og þjónustugeir-
inn sé háður útgerðinni. Allt
hangi þetta á sömu spýtunni
og hryggjarstykkið í þjónustu-
geiranum sé útgerðin.
Hjalti Þór kveðst síður eiga
von á því að Hálfdán verði
gerður út á makrílveiðar í sum-
ar. Síðsumars er ráðgert að bát-
urinn fari í slipp.
Engin uppgrip
í smábátasjó-
mennskunni
þessa
mánuðina
Hjalti Þór Þorkelsson, skipstjóri á Hálfdáni Einarssyni, man ekki jafn lé-
lega vertíð á sínum ferli.
Hálfdán Einarsson ÍS-255. Bátnum var breytt í fyrra og fór þá úr 15
brúttótonnum í 30 brúttótonn.
S
m
á
b
á
ta
ú
tg
erð