Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 20
20
Snæfell – félag smábáta-
eigenda á Snæfellsnesi, skoraði
á sjávarútvegsráðherra á fé-
lagsfundi nýlega að beita sér
fyrir umbótum á umhverfi
strandveiða þannig að veiðar
verði heimilaðar fjóra virka
daga í viku á tímabilinu maí -
ágúst. Sigurjón Hilmarsson,
formaður félagsins, segir að
þetta sé vilji félagsmanna og
samþykkt á aðalfundi Lands-
sambands smábátaeigenda síð-
asta haust. Strandveiðar hófust
sem kunnugt er 5. maí í ár.
Dregur úr pressunni að róa
„Við höfum haldið okkur við
þessa kröfu undanfarin ár og
ekki vikið frá henni. Við teljum
að aflaaukningin yrði ekki mikil
þótt þessu yrði breytt í þessa
veru. Þetta myndi leiða af sér
aukið hagræði og draga úr sjó-
sókn í slæmum veðrum. Menn
færu síður á sjó í vondum veðr-
um með þá vissu að þeir gætu
farið til veiða síðar. Þetta myndi
draga úr pressu og draga úr lík-
um á því að menn færu að róa í
hvaða veðri sem er,“ segir Sig-
urjón.
Hann segir að ef strandveið-
ar hefðu aukist í samræmi við
almenna aflaaukningu síðustu
tveggja ára þá væru ekki telj-
andi vandræði samfara þessari
breytingu.
Í ályktun fundarins segir að
strandveiðar hafi komið inn
sem raunhæf atvinnugrein og
menningarauki fyrir hinar
dreifðu byggðir. Strandveiðar
hafi þannig haslað sér völl inn-
an samfélaganna sem líta á þær
sem örugga starfsemi sem
komin er til að vera, enda veiði-
heimildum dreift á fjölmarga
aðila.
Samráð þarf milli landa í
grásleppumálum
Sigurjón sagði að einnig hefði
verið rætt um grásleppuveiðar,
sem menn hafa verulegar
áhyggjur af vegna mikillar
óvissu um sölu á hrognum.
„Það vantar hreinlega meira
samráð á milli Íslands, Græn-
lands og Noregs um verð á
hrognum og að setja bara eitt
lágmarksverð. Meðan Græn-
lendingar ná ekki samningum
við sína kaupendur þá leggja
þeir ekki einu sinni net.“
Á fundinum var ályktað að
úthlutað skuli 1.500 tonna
veiðiheimildum á síld í Breiða-
firði til smábáta, sem er eins og
um einn farmur hjá síldveiði-
skipi. Skorað var á sjávarútvegs-
ráðherra að auka nú þegar
veiðiheimildir í ýsu um 5000
tonn. Ennfremur ályktaði fund-
urinn á þá leið að brýnt sé að
stjórnvöld viðurkenni að 12%
leyfilegs heildarafla á makríl
verði ætlaður til færaveiða smá-
báta. Sýnt þyki að veiðarnar
skapi gríðarlega atvinnu í landi
og færaveiddur makríll sé eftir-
sótt vara. Snæfell hafnar með
öllu hugmyndum um kvóta-
setningu á makríl.
Framkallar ekki aflaaukningu
Sigurjón gefur út bátinn Nonna
í Vík. Hann hefur verið á strand-
veiðum síðastliðin ár en starfar
jafnframt við vegaeftirlit á vet-
urna.
„Þetta hefur gengið ágæt-
lega og gerir það yfirleitt þegar
maður sleppur við bilanir. En
öflugustu bátarnir á svæði A ná
ekki sama tonnafjölda og á hin-
um svæðunum. Við höfum ekki
tækifæri til þess. Þess vegna
leggjum við til að allir geti róað
í fjóra daga í viku, mánudaga til
föstudaga með þeim takmörk-
unum sem eru í gangi í dag
þessa fjóra mánuði. Með því
myndast jafnræðisgrundvöllur í
veiðunum,“ segir Sigurjón.
Hann telur að náist þessi krafa í
gegn aukist aflinn ekki nema
um að hámarki 2.000 tonn.
Sigurjón Hilmarsson, formaður Snæfells - félags smábátaeigenda á Snæfellsnesi:
Hafna kvótasetningu á
makríl og vilja grundvallar-
breytingu á strandveiðum
Sigurjón Hilmarsson segir hægt að gera breytingar á strandveiðunum
sem dragi úr pressunni í kerfinu og auki jafnræði án þess að til komi
aflaaukning strandveiðiflotans.
Nonni í Vík kemur í höfn eftir góða veiðiferð. Myndir: Alfons Finnsson
S
m
á
b
á
ta
ú
tg
erð