Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 15
15
nafnið gefur til kynna er
vinnslugetan 300 kg á klukku-
stund.
„Við höfum náð öllum okkar
markmiðum með verksmiðj-
unni og hún býr yfir meiri af-
köstum en við reiknuðum með
og með minni orkunotkun. Hún
er algjörlega sjálfvirk að öðru
leyti en því að það þarf að sjá
henni fyrir hráefni og taka frá
henni afurðirnar. Hún hefur ver-
ið að afkasta 330 kg af fiskúr-
gangi á klst. Þetta eru tæp 8
tonn á sólarhring en við vitum
að hægt er að keyra hana upp í
9-10 tonn á sólarhring. Út úr
þessu kemur allt upp í eitt og
hálft tonn af mjöli,“ segir Gunn-
ar. Hægt er að fylgjast með öll-
um þáttum framleiðsluferlisins
með fjarvöktun í gegnum netið
hvar sem er.
Valkostur fyrir ísfisktogara
Verksmiðjan í Garði hefur ein-
göngu verið keyrð á slógi en
getur unnið úr hvaða fiskúr-
gangi sem er. Hún skilar einnig
frá sér lýsi þegar þannig háttar
til. Í desember framleiddi hún
17 tonn af mjöli en var þó ein-
göngu keyrð í þrettán sólar-
hringa. Framleiðslugetan er því
a.m.k. 35 tonn bærist hráefni til
hennar 25 daga í mánuði.
„Nú erum við tilbúnir að
setja þessa verksmiðju á mark-
að en við stefnum að því að
leigja tvær næstu verksmiðjur
okkar til þess að fylgja fram-
leiðslunni vel eftir. Þetta eru
dýrar verksmiðjur og við sjáum
að talsvert áhætta er fyrir
rekstraraðila að kaupa þær. En
við horfum einnig út í heim
með markaðssetninguna og
ekki síst til nota um borð í t.d.
ísfisktogurum þar sem hún
myndi vinna afurðir úr slógi,“
segir Gunnar.
Til falla um 2.000 tonn af
slóg frá togurum sem veiða yfir
10.000 tonn á ári upp úr sjó. Út
úr því kæmu 400 tonn af mjöli
og miðað við heimsmarkaðs-
verð er það um 75 milljónir kr.
Annað eins kæmi af lýsi sem
skilar miklum verðmætum. Í
heildina gæti því verið um 150
milljónir kr. verðmæti að ræða
við vinnslu á 2.000 tonnum af
fiskúrgangi.
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
K 2.21
110 bör max
360 ltr/klst
K 4.200
130 bör max
450 ltr/klst
K 7.700/K 7.710
160 bör max
600 ltr/klst
K 5.700
140 bör max
460 ltr/klst
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
T 400
Snúningsdiskur
Fyrir pallinn,
stéttina o.fl.
Smíðavinna í fullum gangi hjá Héðni.