Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 22

Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 22
22 S m á b á ta ú tg erð Elvar Unnsteinsson, eigandi og skipstjóri á Sómabátnum Erni II SF-70 á Höfn í Hornafirði var sá sem mestan afla dró úr sjó á strandveiðinni sumarið 2013 eða 43,6 tonn. Þennan afla tók hann í 57 róðrum. Elvar hefur róið í strandveiðinni öll árin frá því þessu kerfi var komið á og líkar fyrirkomulagið vel. Hann hefur verið smábátasjómaður í um 30 ár, byrjaði fyrstu árin að róa með föður sínum, Unnsteini Guðmundssyni en síðan fór hann á eigin bát og hefur verið að síðan. Ekkert gerist af sjálfu sér „Já, strandveiðin gekk vel hjá mér í fyrra en það þarf vissu- lega að hafa talsvert fyrir þessu. Það er ekki alltaf logn og sól í þessari útgerð. En í þessu gildir það fornkveðna að það gerist ekki neitt ef maður gerir ekk- ert,“ segir Elvar en hann segist róa á mið bæði vestur og austur frá Hornafirðinum, lengst um 50 mílur. „Aðallega þarf maður að haga seglum eftir veðrinu og að sjálfsögðu lesa í hvar fiskvon er hverju sinni. Fiskurinn er alla jafna meira vestur undan fram- an af tímabilinu og færist síðan austur með landinu eftir því sem á sumarið líður. Fyrst og fremst snýst þetta samt um að fá veður og frið til að nudda þessu upp,“ segir Elvar og lætur vel af fiskinum á þeim miðum sem hann sækir á. Allan sinn afla selur Elvar á fiskmarkaði á Höfn. „Við höfum alltaf haft góðan fisk hér úti fyrir og ekki merkjanleg að hann taki mikl- um sveiflum frá ári til árs.“ Fátt skemmtilegra en að draga í góðu veðri Elvar kann handfæraveiðunum vel og segist raunar ekki hafa farið á annan veiðiskap á sinni tíð sem smábátasjómaður. Eins og áður segir hefur hann róið á færum í hátt í þrjátíu ár og verið einn á, ef frá eru talin allra Smábátar á Höfn. Þegar maður er einn á þarf auðvitað að halda sig vel að en maður slípast líka til í þessu starfi eins og öðrum. Elvar Unnsteinsson er að hefja enn eitt strandveiðisumarið en á síður von á að slá aflamet sitt frá síðasta sumri.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.