Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 21
21
Smábátaútgerð frá Tálknafirði
er ekki svipur hjá sjón, að sögn
Guðna Ólafssonar hafnarvarð-
ar. Hann hefur fylgst með at-
vinnulífinu við höfnina um ára-
tugaskeið og segir fækkunin í
smábátaflotanum gríðarlega.
„Það er ekki eftir nema um tíu
bátar sem gera út héðan en áð-
ur voru hérna allt upp í 60 bát-
ar. Hérna voru ekki bara
heimabátar eins og núna, held-
ur komu þeir vítt og breitt af
landinu. Þetta er alveg skelfi-
leg breyting,“ segir Guðni.
Hann kveðst hafa lifað tím-
ana þrenna hvað þetta varðar.
Það hafi verið líf yfir þessu fyrir
daga kvótakerfisins. Í kjölfarið
hafi smábátar orðið eftirsóttir
og margir selt sína báta. Þá
fækkaði verulega í flotanum.
Bátunum fjölgaði síðan aftur
þegar sóknardagakerfið var tek-
ið upp.
Ágæt aflabrögð að undanförnu
Guðni segir að aflabrögð hafi
verið góð hjá þeim bátum sem
hefur verið róið. „Það hefur ver-
ið góður afli og fallegur fiskur.
Menn fara einhverjar 20 mílur
hérna út og það virðist vera
nóg af fisk í sjónum. En kerfið
mætti vera frjálsara fyrir þessa
litlu báta. Það er engin hætta á
því að þessir karlar veiði upp
stofninn. Það er deginum
ljósara. Menn ættu að fá að róa
sinni trillu í sex mánuði á ári
með tvær rúllur og með
kannski 70 tonna aflaheimild,“
segir Guðni.
Eins og undanfarin ár er tals-
vert líf er í kringum útgerð á
fimm sjóstangveiðibátum fyrir
erlenda stangveiðimenn. Sú
vertíð er hafin núna og stendur
fram í nóvember. Aðsókn er
góð í þessa veiði og mest er
þetta fjölskyldufólk sem er í
gistingu á staðnum.
Línuskipið Kópur BA hefur
að sögn Guðna verið bundið
við bryggju vegna kvótaleysis
og fer líklega ekkert á veiðar
fyrr en í haust, nema báturinn
verði gerður út á makríl í sumar.
Allt til línuveiða
www.isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Tálknafjörður:
Smábátaútgerðin ekki
svipur hjá sjón
Tálknafjörður. Guðni Ólafsson, hafnarvörður, segir að mikil breyting sé orðin á mið við fyrri ár þegar allt upp í um 60 smábátar lögðu upp á Tálknafirði.