Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 32
32
Nýlokið er breytingum á stál-
skipinu Magnúsi SH-205 frá
Hellissandi en það 142 tonn að
stærð, smíðað á Akureyri árið
1974. Breytingarnar voru gerð-
ar hjá skipasmíðastöð Þorgeirs
og Ellerts hf. á Akranesi. Skipið
er gert út af Skarðsvík ehf. á
Hellissandi, sem er í eigu
feðganna Sigurðar Kristjáns-
sonar fyrrverandi skipstjóra og
Sigurðar V. Sigurðssonar skip-
stjóra á Magnúsi. Þeir keyptu
skipið árið 2003 og var því þá
breytt að talsverðu leyti. Meðal
annars var þá sett á það peru-
stefni, skipt um vélar og margt
annað gert. Sigurður segir
miklar breytingar og
betrumbætur hafi verið gerðar
á Magnúsi í gegnum tíðina og
hann sé fyrir vikið nánast eins
og nýr.
Skipið hélt til veiða upp úr
miðjum mars eftir breytinguna
og þegar náðist í Sigurð skip-
stjóra var hann á netaveiðum
úti af Rifi. Hann segir að þessa
breytingu lengi hafa staðið til
en nú hafi verið ákveðið að láta
verða af þessu. „Þetta er hörku-
bátur en með þessu eykst neta-
pláss og öll vinnuaðstaða um
borð er orðin mun betri,“ segir
Sigurður.
Sigurður segir að dagamun-
ur hafi verið á netaveiðunum í
vor. „Við látum netin líka liggja
stutt til þess að ná í ferskari fisk.
Við reynum að gera sem mest
út úr því sem við fáum úthlut-
að,“ bætir hann við en vegna
breytinganna er kvótastaðan
góð hjá útgerðinni og ekki útlit
fyrir mikil stopp það sem eftir
lifir fiskveiðiársins.
Viðamiklar breytingar
Meðal þess sem gert var í skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts
var eftirtalið:
Skipt var um skut þannig að
skipið lengdist um 1,4 metra.
Jafnframt voru lunningar aftast
hækkaðar. Þetta skapar mun
meira vinnupláss og mikið skjól
afturskips. Um leið varð til mun
stærri netalest aftast í skutnum.
Smíðaður var nýr toggálgi með
palli og voðavindu. Brúin var
hækkuð upp þannig að nú er
undir henni rými í fullri hæð.
Allt rafkerfi afturskips, í brú, á
millidekki og í hvalbaksrými var
endurnýjað. Öll siglinga- og
fiskileitartæki voru endurnýjuð
og brú endurinnréttuð og út-
búin lítil setustofa bak-
borðsmegin. Smíðað var nýtt
radarmastur ofan á brúna og
sett þar upp fjarskiptakúla.
Gamalt skorsteinshús úr járni
Glaðir með breytingarnar. Frá vinstri: Sigurður Kristjónsson, Gils Þorri Sigurðsson, Sigurður V. Sigurðsson og Magnús Darri Sigurðsson.
Myndir: Alfons Finnsson
Magnús SH til veiða
á ný eftir breytingar
Ú
tg
erð