Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 25

Ægir - 01.03.2014, Blaðsíða 25
25 „Það hefur verið mikið gæfta- leysi og vertíðin afar erfið,“ segir Þorsteinn Guðbjörnsson, skipstjóri á Berta G ÍS-727 frá Suðureyri. „Ég held það sé að- eins hægt að hafa tvö orð yfir þetta; hrikalegur vetur. Það hefur verið stöðugt óveður og ekki gefið á sjó. Það man enginn eftir svona vertíð. Það er nóg af fiski í sjónum, það vantar ekki. En það hefur bara ekki verið hægt að eiga við þetta,“ segir Þorsteinn. Hann segir að það sé enginn sveigjanleiki í kerfinu. „Það er búið að vera bölvað basl á okk- ur undanfarin þrjú til fjögur ár að eiga við þetta. Það er allt fullt af ýsu og við þurfum að róa 40-50 mílur til þess að losna við hana. Þetta er tóm vitleysa og ýsan ætti auðvitað bara að vera ígildistonn í veiðunum.“ Háskaleikur í allt fyrrasumar Hann segir að strandveiðikerfið stuðli að aukinni hættu við veiðarnar. Auk þess að gera út Berta G rær Þorsteinn litlum strandveiðibát sem hann keypti fyrir tveimur árum. „Þetta var bara háskaleikur í allt fyrrasumar. Við vorum að fara 6-8 mílur út fyrir fjörð með- an allir línubátarnir voru í landi. En allar trillurnar voru á sjó til þess að fá eitthvað út úr þess- um sameiginlega potti. Það verða að vera dagar þannig að menn geti valið hvenær þeir sækja sjó. Það er eins og það þurfi alltaf einhver einn að drepast áður en menn sjá að sér með þessi vitlausu kerfi,“ segir Þorsteinn. Hann segir að öll kerfi sem sett hafa verið upp í kringum smábátaveiðar hafi verið þess- um annmörkum háð og aldrei hafi öryggismál sjómanna verið í forgrunni. „Ég hef verið í þessum bransa í 40 ár og þetta hefur alltaf verið svona. Ég held að menn á þessu svæði myndu al- veg sætta sig við að fá að velja dagana. En eins og þetta er núna á vestursvæðinu þá park- era menn bara snurðvoðarbát- um og stærri bátum frá Stykkis- hólmi og fleiri stöðum nálægt veiðislóðinni meðan strand- veiðin stendur yfir og eru þá stutt í ódýrt hráefni. Ofan á þetta kemur líka verðlækkun til viðbótar. Þetta er alveg arfavit- laust kerfi og með því vitlaus- asta sem hefur verið sett á,“ segir Þorsteinn. „Við þurfum að róa 40-50 mílur til að losna við ýsuna. Þetta er tóm vitleysa,“ segir Þorsteinn Guðbjörnsson. Berti G við bryggju á Suðureyri. Þetta er alveg arfavitlaust kerfi

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.