Ægir - 01.03.2014, Side 12
Fyrirtækið Naust Marine í
Hafnarfirði hefur á undanförn-
um árum selt vindustjórnkerfi,
sem fyrirtækið framleiðir í rúss-
neska versksmiðjutogara. Kerf-
ið, sem heitir ATW Catch
Control, stjórnar togvindum
skipanna en í þessum tilvikum
er ekki um að ræða skipti á
vindubúnaðinum sjálfum og
rafmótorum sem knýja
vindurnar, heldur er eingöngu
skipt um stjórnbúnaðinn sjálf-
an.
Naust Marine hefur um
árabil nær eingöngu sótt sín
verkefni á erlenda markaði og
vindustjórnbúnaður frá fyrir-
tækinu verið settur um borð í
skip í flestum heimsálfum. Í öðr-
um tegundum skipa er þá oft-
ast einnig skipt út vindum og
rafmótorum sem Naust Marine
hefur þá verið innifalið í tilboði
Naust Marine.
Vindubúnaður af stærstu gerð
Þessir rússnesku togarar eru af
stærri gerðinni, 127 metra
langir verksmiðjutogarar með
mjög öflugu rafmagnsvindu-
kerfi. Á sínum tíma létu Sovét-
ríkin sálugu byggja nokkra tugi
slíkra skipa og þau eru víða að
veiðum í dag, til dæmis úti fyrir
Afríkuströndum. Elstu skipin
eru orðin yfir þrjátíu ára gömul
og stjórnbúnaður fyrir vindurn-
ar orðinn úr sér genginn.
„Þessi verkefni vinnum við
þannig að við setjum kerfin
saman hér heima og rússneskir
Naust Marine í Hafnarfirði:
Selja vindustjórn-
búnað í rússnesk
verksmiðjuskip
T
æ
k
n
i
12
Helgi Kristjánsson, sölustjóri
Naust Marine.