Ægir

Volume

Ægir - 01.03.2014, Page 16

Ægir - 01.03.2014, Page 16
16 Ásgeir Jónsson: Útflutningur á ferskum þorskafurðum Ásgeir Jónsson lýkur námi í sjávarútvegsfræði við Auð- lindadeild Háskólans á Akureyri á nú í vor. Viðfangsefnið í hans lokaverkefni er útflutningur á ferskum þorskafurðum frá Ís- landi og Noregi sem og þau tækifæri sem fyrir hendi eru á markaði í Bandaríkjunum. Ásgeir fjallar í ritgerðinni um hvernig þróun útflutnings hef- ur verið á þorski eftir vinnslu- flokkum, m.a. ferskum, söltuð- um og frystum héðan frá Íslandi sem og einnig frá Noregi árin 1999 til 2013. Einnig skoðar hann ítarlega útflutning á fersk- um þorskafurðum frá árinu 2002 til dagsins í dag. Tækifæri fyrir hendi á markaði í Bandaríkjunum „Ég er að athuga hvað hefur breyst á Íslandi á þessu tímabili hvað varðar veiðar, vinnslu, hrá- efnismeðhöndlun, flutning og sölu, en þó nokkrar breytingar hafa orðið á þessu umhverfi undanfarin ár og áratugi. Þá skoða ég hvernig Ísland hefur Nemar á lokaári í sjávarútvegsfræði við Auðlindadeild Háskól- ans á Akureyri hafa nú í vetur unnið að lokaverkefnum sínum, áhugaverðum verkefnum sem öll tengjast íslenskum sjávarút- vegi. Þrír þeirra, Aðalheiður Alfreðsdóttir, Ásgeir Jónsson og Sigurður Steinn Einarsson, sem öll brautskrást með BS gráðu í sjávarútvegsfræði nú í sumar, voru fús til að gefa dálitla inn- sýn í þau verkefni sem hafa unnið að. Skólafélagarnir eru sammála um að nám í sjávarútvegs- fræði sé gott, einn af kostum þess er að það er þverfaglegt og er því víða komið við á þeim þremur árum sem að jafnaði tek- ur að ljúka BS gráðu. „Þetta er afskaplega fjölbreytt og skemmtilegt nám, snertifletirnir eru margir og lýsir íslenskum sjávarútvegi vel, á honum er margar hliðar,“ segja þau. Hluti námsins er á sviði viðskiptafræða, þá er komið inn á vinnslu, útgerð, gæða- og markaðsmál í tengslum við sjávarútveg svo eitthvað sé nefnt. „Það er farið yfir fjölmarga þætti í þessu námi sem gerir það mjög spennandi, þetta nám gefur þeim sem því ljúka tækifæri til að starfa á hinum ýmsu sviðum innan sjávarútvegsins líkt og dæmin með útskrifaða sjávarútvegs- fræðinema sanna,“ segja þau Aðalheiður, Ásgeir og Sigurður. Þau koma sitt úr hvorri áttinn, Ásgeir bjó í Mosfellsbæ og hafði áður byrjað á stjórnmálafræðinámi við Háskóla Íslands og verið á vinnumarkaði um nokkurra ára skeið áður enn hann hóf nám í sjávarútvegsfræði. Hann ber Háskólanum á Akureyri vel söguna og segist kunna betur við sig í fámenni og þeirri nánd sem skapast milli nemenda og kennara en í fjölmenninu syðra. Aðalheiður er fædd á Akureyri en bjó í 14 ár í Þýskalandi, tilviljun réð því að hún hóf nám í sjávarútvegsfræði, en hún hafði langt í frá ætlað sér í slíkt nám „og ég vissi ekkert um fisk áður en ég byrjaði í náminu, áhuginn kviknaði eftir því sem maður lærði meira. Þetta nám er algjör snilld.“ Sigurður er fæddur og uppalinn í Neskaupstað en hann hefur frá 16 ára aldrei unnið ýmis störf hjá Síldarvinnslunni þar í bæ þannig að áhuginn kviknaði snemma. Á fyrsta ári í námi stofnaði hann ásamt tveimur öðrum Norðfirðingum félagið Reykjavík Seafood ehf. í þeim tilgangi að selja fisk og læra bet- ur á markaðshlið sjávarútvegsins. Velta félagins var á liðnu ári 150 milljónir. „Við verðum nú ekki milljónamæringar á þessu, en reynslan sem af þessu fæst er meira virði en peningarnir,“ segir hann. Framtíðin í sjávarútveginum Ásgeir Jónsson skoðar í lokaverkefni sínu í sjávarútvegsfræði við Há- skólann á Akureyri útflutning á ferskum þorskafurðum frá Íslandi og Noregi sem og markaðssetningu landanna í Bandaríkjunum og þau tækifæri sem fyrir hendi eru á markaði þar. U n g a fólk ið og sjá v a rú tv eg u rin n

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.