Ægir - 01.03.2014, Page 26
Þorvaldur Gunnlaugsson rær á Ásþóri RE-395:
Eitthvað er að
breytast í hafinu
Þorvaldur Gunnlaugsson, for-
maður Smábátafélags Reykja-
víkur, gerir út línu- og hand-
færabátinn Ásþór. Við hittum
hann að máli í smábátahöfn
Snarfara í Elliðavog. Búið var
að taka bátinn upp og nýtti
Þorvaldur hrygningarstoppið
til þess að dytta að honum. Á
haustin og veturna er Þorvald-
ur á línuveiðum en á handfær-
um á vorin og sumrin.
„Tíðarfarið hefur verið erfitt
alveg frá því í nóvember fram til
þessa. Þetta hefur verið óvenju-
lega leiðinlegt veðurfar,“ segir
Þorvaldur og lætur ágætlega af
fiskiríinu. Hann er langt kominn
með þorskkvótann en á eitt-
hvað eftir af ufsa. Þorvaldur
hefur ekki gert upp við sig
hvort hann komi til með að
stunda strandveiðar í sumar,
geri út á leigukvóta eða fari í
fyrsta sinn á makríl.
Þorskurinn að elta loðnuna
„Ég hef alltaf tekið þátt í strand-
veiðum. Það var mjög gott
fiskerí á vorin en mér finnst eitt-
hvað vera að breytast í hafinu.
Það er líka gríðarlegt magn af
þorski sem leggst í loðnuna. Og
mín tilfinning er sú að makríll-
inn hafi valdið því að sílið er
horfið og þá er ekkert æti fyrir
þorskinn þegar loðnan hverfur
líka. Fiskurinn virðist þá bara
hverfa ofan í djúpin.“
Þorvaldur segir að svo virðist
sem það sé ennþá loðna á
veiðislóðinni. Það hafi komið
loðna upp úr fiskinum síðast
þegar hann var að veiðum.
„Þetta eru ekki stórar göng-
ur af loðnu heldur smáspýjur
sem þorskurinn eltir. Maður
getur verið heppinn og fengið
stóran og fallegan fisk þegar
ástandið er með þessu hætti.
Það hefur varla sést síli
hérna í þrjú eða fjögur ár.
Svartfugl, sem alltaf var
mikið af, er mikið til horfinn.
Þorvaldur Gunnlaugsson gerir út Ásþór RE og hefur haft
sjómennskuna að aðalstarfi allt sitt líf.
S
m
á
b
á
ta
ú
tg
erð
26