Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2014, Síða 28

Ægir - 01.03.2014, Síða 28
28 Fiskvinnslu- og útgerðarfélagið Stakkavík ehf. í Grindavík var stofnað í mars 1988 af feðgun- um Ólafi Gamalíelssyni, Her- manni og Gesti Ólafssonum og Benedikt Jónssyni, tengdaföð- ur Hermanns. Fyrstu árin verk- aði Stakkavík fisk nær ein- göngu í salt og sérhæfði sig í vinnslu á stórum fiski enda allt handflatt og flakað þar sem engar voru vélarnar. En nú eru tímarnir breyttir og Stakkavík orðið eitt af stærri fiskvinnslu- fyrirtækjunum á staðnum. Fyrirtækið keypti fyrsta bát sinn árið 1995 og í kjölfarið stækkaði bátaflotinn hratt. Í dag er Stakkavík nútímalegt fyr- irtæki með allan nýjasta útbún- að bæði til sjós og lands. Nýir bátar í smíðum Stakkavík sérhæfir sig í ferskum fiski til útflutnings og í bátaflota þess eru nú 7 dagróðrabátar sem gerðir eru út á línu stærst- an hluta ársins. Breyt ing ar eru framundan á bátaflotanum því Stakkavík hefur samið við bátasmiðjuna Seiglu um smíði á tveimur stórum línubátum sem koma til með að geta tekið allt upp í 42 ker í lest. Hermann Ólafsson er fram- kvæmdastjóri Stakkavíkur. Hann segir að nýju bátarnir verði algjör bylting. Lestarrýmið í flotanum sé ekki nægilegt og þess vegna hafi skapast vand- ræði í miklu fiskeríi. Stefnt er að því að fyrri báturinn verði kom- inn í rekstur næsta haust. Þá verði einhverjir af minni bátun- um seldir. „Bátarnir okkar eru kannski með 10-12 ker í dag þannig að nýju bátarnir munu bæta þetta verulega. Einn bátur verður því á við fjóra báta en eitt breytist þó aldrei. Það verða áfram bara 24 tímar í sólarhringnum,“ segir Hermann og slær á létta strengi. Með stærri bátum opnast sá möguleiki að slægja fyrri lögn- ina og koma síðan að landi með seinni lögnina óslægða. Þetta er ekki hægt á bátum Stakka- víkur í dag vegna plássleysis í þeim. Nýju bátarnir verða auk þess með fullkominni aðstöðu Unnið við snyrtingu á flökum. Mikil áhersla er lögð á hreinlæti og snyrtimennsku hjá Stakkavík. Nánast allur afli Stakkavíkur er unninn í ferskfisk og sendur til kaup- enda víða um heim. Útgerð, fiskvinnsla og ferðamannaþjónusta! F isk v in n sla

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.